Year: 2020
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Oft í lífinu þurfa að vera teknar ákvarðanir sem byggja á því að ekki er bersýnilegt hver rétta ákvörðunin er en samt er hægt að nálgast bestu lausnina með að beita rökrænni hugsun. Þetta kallast að bera huglægt mat á hluti (e. cognitive estimation) og hefur það verið mælt með prófi sem kallast the Cognitive Estimation Task (CET). Fólk með framheilaskaða á það til að standa sig verr en heilbrigðir í CET og er því CET góð skimun fyrir því hvort manneskja hrjáist af einhvers konar skaða á framheilasvæðum. Í þessari rannsókn var miðað að því að þýða tvær útgáfur af CET yfir á íslensku sem voru svo prófaðar á heilbrigðum einstaklingum. Prófaðir voru 72 heilbrigðir Íslendingar á aldrinum 21-65 ára í þessari rannsókn. Niðurstöður gefa upp dreifingu heilbrigðra Íslendinga á þessu prófi sem er svo hægt að nota til samanburðar. Próffræðilegir eiginleikar prófsins urðu aðeins lakari við þýðingu yfir á íslensku svo að það er ljóst að nokkuð þarf að fínpússa prófið áður en það verður tilbúið fyrir almenna notkun á Íslandi.
Source: Skemman
Author: Árni Gunnar Eyþórsson 1990-
Institution: Reykjavík University
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7039908940
