Work

Núvitund fyrir börn með hegðunarvanda : "kennir einstaklingnum að þekkja tilfinningar sínar"

Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Rannsóknir á hegðunarvanda barna hafa leitt í ljós að hann hefur aukist hjá börnum á grunnskólaaldri. Í könnun á starfi íslenskra grunnskólakennara frá árinu 2006 og 2012 kom fram það viðhorf kennaranna að álag í starfi þeirra hafi aukist mikið og vísuðu þeir iðulega til hegðunarvanda nemenda í því sambandi. Áhugi fræðimanna hefur því í auknum mæli beinst að því að skoða hvaða þættir tengjast hegðunarvanda barna og hvernig megi styðja við þessi börn bæði í leik og starfi. \nTilgangur þessarar eigindlegu rannsóknar er að skoða upplifun foreldra barna með hegðunarvanda og kennara þeirra af birtingarmynd vandans. Jafnframt verður leitað eftir viðhorfum þeirra til úrræða vegna hegðunarvanda barna svo og til þess hvort ástundun núvitundar gagnist börnunum. Sem hluti rannsóknarinnar hélt rannsakandi tvö núvitundarnámskeið fyrir tíu grunnskólabörn þar sem fjögur þeirra voru með einhvers konar hegðunarvanda. Sex vikur liðu milli námskeiða en alls mættu börnin í tólf skipti. Eftir hvert námskeið voru tekin djúpviðtöl við mæður þeirra fjögurra barna sem voru með hegðunarvanda, kennara þeirra tvo og börnin sjálf. Viðtölin voru því næst afrituð og þemagreind. \nMeginniðurstöður gáfu til kynna að börn með hegðunarvanda eigi erfitt með að fara að fyrirmælum og að bæði foreldrar og kennarar séu oft ráðalausir í því efni. Úrræði séu af skornum skammti og mikil bið eftir sérfræðiaðstoð. Niðurstöður gáfu jafnframt til kynna að ástundun núvitundar geti verið gagnleg fyrir börn með hegðunarvanda en að hún komi ekki í staðinn fyrir önnur inngrip. Uppeldishættir foreldra skipti sköpum í því að vinna með hegðun barnanna. Þá skipti máli að í nærsamfélagi barnanna sé boðið upp á ýmis þau stuðningsúrræði sem gagnreyndar rannsóknir hafi sýnt að hjálpi börnum með hegðunarvanda. Í rannsókninni er rætt frekar um niðurstöður og mikilvægi þess að rannsaka þetta viðfangsefni betur.
Source: Skemman
Author: Hrafnhildur Hlín Hjartardóttir 1984
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7039989598
Cites: 68
Cited by:
Related to: 10