Ofmenntun á íslenskum vinnumarkaði : þjóðhagfræðileg og lýðfræðileg áhrif ofmenntunar á íslenska hagkerfið
Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Á síðustu árum hefur áhugi á ofmenntun sem viðfangsefni og mögulegu samfélagslegu og hagrænu vandamáli kviknað meðal hagfræðinga. Á Íslandi er hærra hlutfall ungs fólks í háskóla en í nokkru öðru ríki og því má telja líklegt að hér sé ofmenntun á vinnumarkaði. Lítið hefur þó verið um rannsóknir á áhrifum ofmenntunar og hvort hún teljist vera meiri hér á Íslandi en í öðrum ríkjum. Erfitt er að finna gögn um alþjóðlegan samanburð. \n \nRannsóknir sýna að Ísland stendur sig tiltölulega vel þegar kemur að ofmenntun er upp er staðið. Ofmenntun á Íslandi er mjög lág en fer vaxandi. Ofmenntun á Íslandi stafar að mestu leyti af misræmi á vinnumarkaði. Er litið er á áhrif ofmenntunar á Íslandi eru þau hverfandi lág fyrir Íslendinga sem einstaklinga, en hærri fyrir íslenska hagkerfið í heild. Lítið misvægi er á menntun Íslendinga og þörf hagkerfisins fyrir menntun. Menntakerfið á Íslandi stendur sig vel í að halda ofmenntun í skefjum miðað við önnur lönd, og er vel í stakk búið til að takast á við ofmenntun í framtíðinni
Source: Skemman
Author: Bjarki Ólafur Hugason
Institution: Reykjavík University
Language: Icelandic
Subfield: Economics and Econometrics
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7042056144
