Plasmíð miðlað kólistín ónæmi í E. coli og K. pneumoniae á Íslandi og algengi og sýklalyfjanæmi Enterobacteriaceae í grænmeti og berjum
Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Sýkingar af völdum fjölónæmra Gram neikvæðra baktería er vaxandi vandamál um allan heim. Mikil aukning í algengi breiðvirkra β-laktam sýklalyfjaónæmra baktería hefur orðið til þess að sýklalyfið kólistín var tekið aftur í notkun sem síðasta úrræði gegn þessum sýkingum, en notkun þess í mönnum var hætt vegna alvarlegra aukaverkana. Aukin notkun kólistíns hefur orðið til þess að bakteríur hafa í vaxandi mæli myndað ónæmi gegn því. Í lok árs 2015 var greint frá því að kólistín ónæmi af völdum plasmíðsins MCR-1 hafi fundist í Kína. Í kjölfarið hefur plasmíðið fundist í fimm heimsálfum og þar á meðal í mörgum nágrannalöndum okkar. \nNeysla á ferskum landbúnaðarafurðum hefur aukist á síðustu árum. Alþjóðaverslun hefur stækkað töluvert og hægt er að nálgast ferska afurði allan ársins hring. Grænmeti er oftast neytt hrátt sem getur leitt til þess að örverur séu innbyrðar. Neysla á ferskum afurðum getur einnig útsett menn fyrir ónæmum bakteríum. Staða sýklalyfjaónæmis er mikið áhyggjuefni og tekur ónæmi ekki tillit til landamæra. Alþjóðaviðskipti er því möguleg leið fyrir sýklalyfjaónæmar bakteríur til þess að breiðast út. \nMarkmið þessarar rannsóknar er í fyrsta lagi að leita að kólistín ónæmum E. coli og K. pneumoniae stofnum og þá að kanna hvort að ónæmið sé af völdum MCR-1 plasmíðsins. Í öðru lagi að meta algengi og hlutfallslegt magn baktería í innlendu og innfluttu grænmeti og berjum. Og að rannsaka sýklalyfjanæmi bakteríanna og algengi breiðvirkra beta laktamasa (extended-spectrum β-laktamasa, ESBL) framleiðandi Enterobacteriaceae einangruð úr grænmeti og berjum. \nVið leit að kólistín ónæmi voru valdir ESBL jákvæðir, gentamicin ónæmir E. coli og K. pneumoniae úr stofnasafni Landspítalans frá árinu 2012 fram til janúar 2017. Fjöldi sýna var 101 og skiptust þau í 84 E. coli stofna og 17 K. pneumoniae stofna. Skimað var fyrir kólistín ónæmi með þynningarbakka, skífuprófi og E-test. PCR var notað til þess að kanna hvort kólistín ónæmi væri af völdum MCR-1 plasmíðs. 416 grænmetis- og berjasýnum var safnað frá helstu matvöruverslunum höfuðborgasvæðisins sem og frá innflutnings- og dreifingarfyrirtækinu Bananar ehf yfir tímabilið 24. október til 19. mars. Valin voru helstu tegundir grænmetis og berja sem í boði voru í hverri verslun fyrir sig. Sýnin skiptust í 288 erlend, 127 íslensk og eitt sýni af óþekktum uppruna. Grænmetis- og berjasýni voru gerð einsleit og þau forræktuð á TSA og VRBA. Ef bakteríuþyrpingar uxu var þeim sáð á MacConkey og þær síðan greindar í MALDI-TOF. Næmispróf voru framkvæmd og staðfestingarpróf ef þess þurfti. \nAðeins eitt K. pneumoniae sýni var kólistín ónæmt (MIC=4 µl/ml skv. E-test og þynningarprófi), en PCR fyrir MCR-1 geni var neikvætt, sem bendir til þess að kólistín ónæmi hérlendis sé líklegast ekki orðið plasmíð miðlað. \nAf 416 grænmetis- og berjasýnum uxu bakteríur á 26,7% (n=111) sýnum. Af þeim voru 23,6% (n=68) erlend og 33,9% (n=43) íslensk. Ekkert berjasýnanna sýndi bakteríuvöxt. Enterobacter cloacae complex var sú bakteríutegund sem fannst í flestum sýnum. Allir stofnar Citrobacter braakii, Citrobacter gillenii, Cronobacter sakazakii og E. coli reyndust næmir fyrir öllum sýklalyfjum sem voru prófuð. Sú baktería sem var ónæm fyrir flestum sýklalyfjum var Enterobacter cloacae complex stofn frá Spáni, sem var ónæmur fyrir sjö sýklalyfjum. Ísland var með 0% (n=0) sýna ónæm fyrir fimm eða fleiri sýklalyfjum. Ítalía var með 23,4% (n=11) og Spánn var með 66,7% (n=2) sýna ónæm fyrir fimm eða fleiri sýklalyfjum. Engin baktería var jákvæð í ESBL staðfestingarprófi. \nKólistín ónæmi er líklegast ekki orðið plasmíð miðlað hérlendis og ESBL framleiðandi bakteríur var hvorki að finna í grænmeti né berjum. Mikilvægt er að fylgjast vel með kólistín ónæmi og sýklalyfjaónæmi í grænmeti og berjum því ónæmar bakteríur geta borist með innfluttum mætvælum.
Source: Skemman
Author: Guðný Klara Bjarnadóttir 1993
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Microbiology (medical)
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7042690661
