Year: 2014
Type: dissertation
Study design: Clinical Trial
Abstract: Markmið: Það hefur verið mælt með því að styrktarþjálfun fyrir fótbolta byggist á því að sameina mismunandi tegundir af þjálfun. Það hefur einnig verið tilhneiging hjá íþróttamönnum og þjálfurum að sleppa svokallaðri fyrirbygjandi meiðslaþjálfun. Markmið þessarar rannsóknar var að búa til sérstakt styrktarprógram fyrir fótbolta, sem hefði marga mismunandi þjálfunarþætti setta inn í hverja styrktaræfingu. Til dæmis sprengikraftsæfingar með dýnamískum þáttum inn í, styrktaræfingar með dýnamískum þáttum, plýometrískar æfingar sem eru bæði með mikilli og lítilli ákefð og fimisæfinar sem hafa dýnamíska stöðuleikaþætti. \nFramkvæmd: Þátttakendur voru valdir úr tveimur fótboltaliðum innan borgarmarka Reykjavíkur. Það voru 23 karlar í rannsóknarhóp og 23 karlar í viðmiðunarhóp. Þessari rannsókn var skipt upp í nokkra þætti. Skoðaðir voru áhættuþættir í neðri útlimum með 2D hreyfigreiningu, út frá framstigs hoppprófi með lendingu á öðrum fæti. Einnig voru skoðaðar frammistöðumælingar á 30 m sprettprófi, hámarks hoppprófi og hámark styrkprófi. Prófin voru framkvæmd fyrir og eftir inngrip sem var gert með sérstöku styrktarprógrami (próf fyrir inngrip M1 og próf eftir inngrip M2). Mælingar á prófum í eftirfylgni voru einnig tvær (prófin voru tekin á miðju fótboltatímabili M3 og í lok tímabils M4). Prófin sem voru gerð í eftirfylgninni voru hraðamæling, hámarkshopp og hámarksstyrkur. Rannsóknarhópurinn fékk einnig áframhaldandi prógram í gegnum alla eftirfylgnina. Fyrri meiðsli voru einnig skráð hjá þátttakendum áður en rannsókn hófst og einnig voru meiðsli yfir allt fótboltatímabilið skráð niður, en það var gert eftir tímabilið. \nNiðurstöður: Meiðsli: Það var ekki marktækur munur á meiðslum milli hópa. Framistöðumælingar í hraðaprófi og styrkprófi: Það var marktækur munur á milli hópa í mælingum M1 og M2 þar sem rannsóknarhópur náði betri árangri miðað við viðmiðunarhópinn. Í hraðaprófi (F = 5.62, P = 0.02) og í styrkprófi (F = 4.58, P = 0.04). Aftur á móti var enginn marktækur munur á hópum í hámarks hoppprófi í mælingum M1 og M2. Einnig var enginn munu á milli hópa í eftirfylgni mælingum M3 og M4. Hreyfigreining: Það var engin munur á milli hópa í hreyfigreiningunni í mælingum M1 og M2. \nÁlyktun: Það lítur út fyrir að sérstakt styrktarprógram geti haft jákvæð áhrif á bætingu á hraða og styrk miðað við styrktarprógram sem er gert með ketilbjöllum og þjálfun í lyftingarsal. Fyrir framtíðar rannsóknir væri gott að finna aðrar mælingar fyrir hreyfigreiningu sem gætu hugsanlega útskýrt betur breytingu á hreyfigum miðað við fækkun á meiðslum út frá mismunandi tegundum af styrktarþjálfun. Út frá því væri hugsanlega möguleiki að spá betur fyrir um líkur á meiðslum hjá fótboltamönnum heldur en er hægt að gera í dag. Það þurfa einnig að vera fleiri þátttakendur í framtíðarrannsóknum til að fá aukið tölfræðilegt afl.
Source: Skemman
Author: Jóhannes Már Marteinsson
Institution: Reykjavík University
Language: Icelandic
Subfield: Orthopedics and Sports Medicine
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7042857788
