Regenerative Farming Practices: A Pathway to Sustainable Agriculture and Resilient Global Food Systems
Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Matvælakerfi heimsins og gæði jarðvegs standa frammi fyrir nýjum áskorunum vegna þeirra aðferða sem mannkynið hefur fram til þessa notað í landbúnaði. Hefðbundinn landbúnaður einkennist af mikilli efnanotkun og jarðvinnslu. Það leiðir til niðurbrots á jarðvegi, samdrætti í líffræðilegum fjölbreytileika og aukinnar losunar gróðurhúsalofttegunda. \nMeð þessari rannsókn er leitast við að kanna hvort til séu aðrar aðferðir í landbúnaði til að framleiða matvæli án þess að raska þeirri mikilvægu auðlind sem jarðvegurinn er. Almennt er litið svo á að auðgandi (e. regenerative) landbúnaður byggi á fjórum meginreglum: 1) takmarkaðri röskun, 2) hlífum (e. armour through cover cropping) og lifandi rótum, 3) fjölbreytileika og 4) samspili búfénaðar og jarðræktunar. Með því að fylgja aðferðum sem byggja á þessum meginreglum er hægt að innleiða lausnir sem miða að því að gera jarðveginn heilbrigðari, auka sjálfbærni í hinu alþjóðlega matvælakerfi, draga úr tapi á líffjölbreytileika og auka kolefnisbindingu. Menn greinir aftur á móti á um hvort landbúnaður sem byggir á þessum aðferðum geti afkastað jafn miklu og hefðbundinn landbúnaður án þess að brjóta undir sig meira landsvæði. \nÞegar á heildina er litið er auðgandi landbúnaður, auk nýrrar tækni í matvælaframleiðslu sem byggir á vísindalegum rannsóknum, vænlegasta leiðin til þess að auka sjálfbærni í allri landbúnaðarframleiðslu. \n
Source: Skemman
Author: Ásdís Embla Ásmundsdóttir
Institutions: University of Iceland, Institute of Earth Sciences
Language: Icelandic
Topic: Plant and soil sciences
Domain: Life Sciences
Keywords: regenerative agriculture, sustainable agriculture, soil health, soil erosion, cover crops, living roots, biodiversity, soil carbon sequestration, food security, food system resilience, conventional farming, crop yield, land use efficiency, climate change adaptation, climate change mitigation, soil organic matter, soil water retention, soil salinity, soil compaction, soil pH
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7042964726
