Work

Sálfræðilegi samningurinn. Dulinn áhrifavaldur

Year: 2010
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvernig sálfræðilegi samningurinn er byggður upp á vinnustöðum og að kanna hvort mismunur er á túlkun yfir- og undirmanna á samningnum. Einnig var markmiðið að kanna hversu meðvitaðir samningsaðilar eru um sálfræðilega samninginn, hvort yfirmenn geri sér grein fyrir mikilvægi hans og hvað þeir geri til að hlúa að honum. Síðast en ekki síst var ætlunin að kanna viðbrögð starfsmanna við broti á sálfræðilega samningnum, hvort uppsagnir tengist brotum á samningnum og hvort yfirmenn viti raunverulegar ástæður þess að starfsfólk segir upp störfum sínum. \nEigindleg rannsókn var gerð til að leita svara við þessum spurningum. Tekin voru viðtöl við átta manns hjá tveim fyrirtækjum, þrjá starfsmenn og einn starfsmannastjóra frá hvoru fyrirtæki. Starfsmennirnir höfðu allir sagt upp störfum hjá viðkomandi fyrirtæki á síðustu tveim árum. \nNiðurstöður rannsóknarinnar eru þær að uppbygging sálfræðilega samningsins er ekki markvisst meðvitað ferli sem starfsmenn fara í gegnum, né heldur voru yfirmenn meðvitaðir um að hlúa þyrfti markvisst að sálfræðilega samningnum við starfsmenn. Undirmenn tengdu sálfræðilega samninginn við líðan á vinnustað, væntingar til vinnustaðarins og innri samskipti. Yfirmenn tengdu samninginn ytri aðbúnaði, vinnufyrirkomulagi og daglegum samskiptum. Enginn þátttakandi í rannsókninni, hvorki yfirmenn né undirmenn, þekktu til hugtaksins um sálfræðilega samninginn fyrir viðtalið en allir skildu við hvað var átt eftir stutta útskýringu. Fjórir af sex starfsmönnum sögðu að brotið hefði verið gegn sálfræðilega samningnum sem þeir töldu sig hafa haft við fyrirtækið. Viðbrögð starfsmanna við brotum á samningnum voru allt frá aðgerðaleysi til uppsagnar. Í öllum tilfellum liðu einhverjir mánuðir frá broti til uppsagnar. Þrír af sex starfsmönnum sögðu að brot á sálfræðilega samningnum hefði verið aðalástæðan fyrir því að þeir sögðu upp. Rannsóknin leiddi í ljós að í 50% tilfella vita yfirmenn ekki raunverulegar ástæður þess að starfsmenn segja upp. Starfsmenn gefa upp hluta ástæðunnar eða tylliástæðu en halda eftir „óþægilegri“ hlutanum eins og broti á sálfræðilega samningnum. Helstu hugmyndir yfirmanna um ástæðu uppsagna voru tengdar því að starfsmenn væru að flytja eða að fara í nám.
Source: Skemman
Author: Guðlaug María Sigurðardóttir 1965
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7042970382
Cites: 60
Cited by: 11
Related to: 10