Réttmætisathugun á Málfærni eldri leikskólabarna (MELB): Samanburður við málsýni og HLJÓM-2
Year: 2020
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Inngangur: Rannsókn þessi er liður í stöðlun málþroskaprófsins Málfærni eldri leikskólabarna (MELB) sem er ætlað börnum á aldrinum 4;0 ára til 5;11 ára og metur heildarmálþroska barna. Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvort samræmi sé á milli MELB og annarra athugana eða prófa af svipuðum toga. Hér verður miðað að því að athuga réttmæti prófsins með því að skoða fylgni þess við niðurstöður úr HLJÓM-2 og málsýna hjá börnum á aldursbilinu 5;3 – 5;11 ára. HLJÓM-2 er aldursbundin skimun sem metur hljóðkerfis- og málmeðvitund barna. Málsýni eru sýnishorn af máltjáningu barna við daglegar aðstæður. Réttmætisathugunin fólst í því að athuga hvort marktæk fylgni væri milli frammistöðu á málþroskaprófinu MELB og málsýna og hins vegar hvort marktæk fylgni væri milli frammistöðu á málþroskaprófinu MELB og niðurstaðna úr HLJÓM-2. \nAðferð: Þátttakendur rannsóknarinnar voru 30 börn, öll eintyngd og ekki greind með þroskaskerðingu. MELB var lagt fyrir í heild sinni fyrir öll börnin. Við fyrirlögn prófanna var alltaf byrjað á að leggja fyrir MELB og strax þar á eftir tekið málsýni. Niðurstöður HLJÓM-2 voru fengin hjá deildarstjórum eða sérkennslustjórum á leikskólum barnanna. Niðurstöður á MELB og HLJÓM-2 voru skoðaðar út frá heildarskori, prófhlutum og prófþáttum. Málsýni voru tekin í tilbúnum leikaðstæðum sem prófandi setti upp. Hvert málsýni var 50 segðir og við úrvinnslu þeirra var reiknuð meðallengd segða (MLS), heildarfjöldi orða (HFO), fjöldi mismunandi orða (FMO) og hlutfall málfræðivillna. Niðurstöður MELB og málsýna voru skoðuð með því að athuga fylgni heildarskora, prófhluta og prófþátta MELB við mælieiningar málsýna. Hjá þátttakendum fengust niðurstöður úr öllum þáttum og voru þær nýttar við gerð rannsóknarinnar. \nNiðurstöður: Niðurstöður gáfu vísbendingar um að viðunandi hugsmíðaréttmæti væri til staðar og að MELB meti heildarmálþroska barna. Fylgni heildarskora á HLJÓM-2 við heildarskor á MELB var há, jákvæð og marktæk (r = 0,52), sem gaf vísbendingar um að prófin væru að mæla skilda hugsmíð. Þegar fylgni prófhluta MELB við mælieiningar málsýna var skoðuð sást hærri fylgni við máltjáningarhluta prófsins en málskilningshluta þess. Þetta gefur vísbendingar um að prófið greini vel á milli máltjáningar og málskilnings. Mælieiningar málsýna höfðu missterka fylgni við heildarskor MELB en hún var marktæk í öllum tilvikum nema við já/nei svörun. Jákvæð fylgni var við MLS, HFO og FMO (r =0,38 til 0,47). Neikvæð fylgni var við Já/nei svörun og málfræðivillur (r = -0,15 og -0,49). \nSamantekt og ályktanir: Fylgni MELB við HLJÓM-2 var viðunandi og einnig fylgni MELB við málsýni. Niðurstöður styrkja réttmæti prófsins og vísbendingar eru um að tilgátur sem settar voru fram standist. Áætla má því að prófið sé réttmætt mælitæki á málþroska barna.
Source: Skemman
Author: Brynja Björgvinsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7042970806
