Work

Rannsókn á Kóngsfellshrauni með fjarkönnun og landupplýsingum

Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Í þessari ritgerð er notast við fjarkönnun og landupplýsingar til þess að kortleggja og rannsaka Kóngsfellshraun sem á upptök sín við úr röð gíga við fjallið Stóra-Kóngsfell. Kóngsfellshraun myndaðist í eldgosi sem er innan eldstöðvakerfi Brennisteinsfjalla. Talið er að það hafi myndast fyrir um 1000 árum í eldgosahrinu á Reykjanesskaga. Kóngsfellshraun er 8,6 km2 að stærð og reiknað rúmmál þess 48 milljón m3. Það er mögulega partur af töluvert stærri hraunbreiðu sem nefnist Húsfellsbruni sem gæti hafa myndast í einni og sömu goshrinunni. Húsfellsbruni er 29 km2 að stærð og rúmmál þess er yfir 0,3 km3. Ásýnd hraunsins er lýst ásamt ítarlegum lýsingum á hraunflóðum hraunsins þess . Breidd hraunflóðanna var mæld ásamt breidd hraunrása sem eru partur af þeim. Einnig voru gerðir halla- og hæðarferlar yfir þau. Annað sem var skoðað voru hraunsepar á bæði vestur- og austurhraunflóðunum þar sem mæld var þykkt og breidd þeirra. Notast var við landupplýsingarforritið QGIS fyrir alla kortlagningu ásamt öðrum mælingum og til þess að reikna rúmmál hraunsins og meðalþykkt. Hraunið er staðsett í grennd við höfuðborgarsvæðið og er því mikilvægt að rannsaka það sem og önnur hraun á svæðinu svo bæta megi til þess að bæta hættumat vegna eldgosa á svæðinu.
Source: Skemman
Author: Tryggvi Már Sigurjónsson
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7043021071
Cites: 19
Cited by:
Related to: 10