Work

Sálfélagslegir áhrifaþættir heilsu ungbarna: fræðilegt yfirlit

Year: 2012
Type: dissertation
Abstract: Rannsóknir sýna að menntun, efnahagur og félagsleg staða foreldra hafa umtalsverð áhrif á heilsu barna. Vísbendingar eru um að efnahagsleg stéttaskipting hafi aukist hér á landi. Tilgangur þessa fræðilega yfirlits er að varpa ljósi á stöðu þekkingar um sálfélagslega áhrifaþætti á heilsu ungbarna og hlutverk hjúkrunarfræðinga við að veita fjölskyldum í vanda ráðgjöf og stuðning. Upplýsinga var aflað úr rannsóknagreinum og opinberum gögnum. Niðurstöður benda til þess að börn foreldra í lægri stigum samfélagsins glími oft við heilsuvanda og hafa menntun og tekjur foreldra þar mest áhrif. Þessi börn eru jafnframt líklegri til að vera með lága fæðingarþyngd, astma, öndunarfærasjúkdóma, að vera í ofþyngd og aukin hætta er á röskun á tilfinninga- og vitsmunaþroska. Í ljósi rannsókna þyrfti mat á aðstæðum foreldra að fara fram á meðgöngu. Þá er auðveldara að finna fjölskyldur sem búa við sálfélagslegan vanda og að veita viðeigandi þjónustu í kjölfarið. Hjúkrunarfræðingar eru í góðri stöðu til þess að skima fyrir og meta líðan og aðstæður fjölskyldna vegna nálægðar sinnar við samfélagið og góðrar þekkingar á heilsueflingu og forvörnum. Auka þarf fræðslu heilbrigðisstétta um sálfélagslega áhrifaþætti á heilsu barna og um árangursrík úrræði. Jafnframt þarf að efla rannsóknir á sviðinu sem og stefnumótun og gera skipulag þjónustu við þá sem minna mega sín markvissara.
Source: Skemman
Author: Anna Herdís Pálsdóttir 1988
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7043084874
Cites: 36
Cited by:
Related to: 10