Work

Samanburður á neyslu D-vítamíns í fæðubótarformi milli íþróttafólks og þeirra sem stunda ekki íþróttir

Year: 2017
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Tilgangur: Megintilgangur verkefnisins var að skoða hvort íþróttafólk sé líklegra til þess að taka inn D-vítamín í fæðubótarformi heldur en þeir sem stunda ekki íþróttir. \nAðferð: Unnið var með gögn frá 248 þátttakendum á aldrinum 16-36 ára. Þátttakendum var skipt niður í þrjá mismunandi flokka eftir hversu oft þeir stunda íþróttir með íþróttafélagi eða aðrar æfingar á eigin vegum. Kí-kvaðrat marktektarpróf var notað til þess að skoða hvort munur væri á neyslu D-vítamíns í fæðubótarformi milli þeirra sem stunda reglulega æfingar oftar en einu sinni í viku og þeirra sem hreyfa sig í mesta lagi einu sinni í viku. \nNiðurstöður: Marktækur munur mældist á reglubundinni D-vítamínneyslu milli þátttakenda sem stunda íþróttir eða æfingar oftar en einu sinni í viku og þátttakenda sem hreyfa sig í mesta lagi einu sinni í viku (p<0,05). 67,5% þátttakenda sem stunda íþróttir með íþróttafélagi oftar en einu sinni í viku taka D-vítamín í fæðubótarformi að staðaldri, 73,7% þátttakenda sem stunda æfingar á eigin vegum oftar en einu sinni í viku taka D-vítamín í fæðubótarformi að staðaldri og 48,8% þátttakenda sem hreyfa sig í mesta lagi einu sinni í viku taka D-vítamín í fæðubótarformi að staðaldri. \nÁlyktanir: Einstaklingar sem stunda reglulega íþróttir eða æfingar oftar en einu sinni í viku eru líklegri til þess að taka D-vítamín í fæðubótarformi að staðaldri heldur en þeir sem hreyfa sig í mesta lagi einu sinni í viku.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7043126310
Cites: 58
Cited by:
Related to: 10