Work

Samræmi gilda fyrirtækja og starfsmanna. Skoðun stjórnenda íslenskra fyrirtækja á mikilvægi samræmis og verklag við ósamræmi

Year: 2025
Type: dissertation
Abstract: Þessi rannsókn fjallar um gildi starfsfólks og fyrirtækja og mikilvægi þess að gildin séu samræmd til að samstarf sé gott. Markmið rannsóknarinnar er að komast að því hvað stjórnendur þriggja mis stórra íslenskra fyrirtækja þykir um mikilvægi samræmda gilda og hvaða verkferlum stjórnendurnir og fyrirtækin fara eftir ef gildin eru ekki þau sömu. Við gerð rannsóknar var notast við eigindlega rannsóknaraðferð þar sem tekin voru viðtöl við þrjá stjórnendur mis stórra íslenskra fyrirtækja. Helstu niðurstöður rannsóknarinnar bentu til þess að stjórnendur þessara fyrirtækja viðurkenna almennt mikilvægi þess að gildi starfsfólks og fyrirtækis séu samræmd til að auka velgengni innan fyrirtækisins og til að efla vellíðan starfsmanna. Mismunandi er hvernig stjórnendurnir vinna að ósamræmdum gildum starfsfólks og fyrirtækisins út frá stærð fyrirtækisins. Stjórnendurnir eru allir með ákveðna verkferla til að takast á við ósamræmi gilda. Stærri fyrirtæki fara varlegar þegar kemur að ósamræmingu í gildum, frekar en minni fyrirtæki sem hafa ekki eins mikla þolinmæði gagnvart ósamræmi. Þó kom fram að smærra fyrirtæki finnur meira fyrir því ef einn einstaklingur hefur ósamræmd gildi heldur en hjá stærra fyrirtæki. Rannsóknin er mikilvæg því hún skoðar hvernig samræming gilda fyrirtækja og starfsmanna getur aukið framleiðni, bætt starfsanda og styrkt velgengni fyrirtækja. Hún fyllir í eyðu í fræðunum með því að kanna viðbrögð stjórnenda við ósamræmdum gildum og veitir einstaka innsýn í íslenskt viðskiptaumhverfi, sem getur meðal annaras hjálpað til við að bæta ráðningaferli og skapa heilbrigt starfsumhverfi.
Source: Skemman
Author: Sigríður Marta Ingvarsdóttir
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7043235548
Cites: 23
Cited by:
Related to: 10