Year: 2018
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Svefn er öllum manneskjum nauðsynlegur. Hann er flókið lífeðlislegt ferli sem er ákaflega viðkvæmt fyrir hvers kyns röskunum. Ófullnægjandi svefn getur haft víðtækar og alvarlegar afleiðingar en hann getur meðal annars haft neikvæð áhrif á andlega og líkamlega heilsu. Svefn er sérstaklega mikilvægur unglingum en rannsóknir sýna að stór hluti unglinga fær ekki nægan svefn. Ófullnægjandi svefn unglinga er gjarnan rakinn til svefnvenja en margir unglingar temja sér slæmar svefnvenjur. Þetta er alþjóðlegt vandamál sem leita þarf lausna við. Markmið þessarar rannsóknar var að skýra frá svefnvenjum unglinga í 8.10. bekk í grunnskólum á landsbyggðinni, skoða hvort tengsl væru milli svefnvenja og þekkingar þeirra á svefni og hvort góð þekking á svefni stuðlaði að betri svefnvenjum. Meginmarkmiðið var þannig að varpa ljósi á hvort kennsla um svefn í grunnskólum stuðlaði að bættum svefnvenjum meðal unglinga sem myndu skila sér í betri svefni. Rannsóknir sem hafa verið gerðar á áhrifum kennslu um svefn á svefnvenjur gefa ólíkar niðurstöður. Sumar þeirra gefa til dæmis til kynna að svefnkennsla stuðli að bættum svefnvenjum en aðrar benda til þess að kennsla um svefn hafi engin áhrif á svefnvenjur. Rannsóknin var megindleg og notast var við spurningalista með lokuðum spurningum til að afla upplýsinga um svefnvenjur þátttakenda. Fjölvalspróf með einum réttum svarmöguleika var notað til að varpa ljósi á þekkingu þeirra á svefni. Þátttakendur voru 142 unglingar úr sex grunnskólum á landsbyggðinni. Niðurstöðurnar leiddu í ljós að þátttakendur höfðu tamið sér betri svefnvenjur en margir aðrir unglingar. Þær bentu jafnframt til að engin marktæk fylgni reyndist vera milli þekkingar á svefni og svefnvenja. Þar af leiðandi virðist góð þekking á svefni ekki endilega stuðla að betri svefnvenjum meðal unglinga ef marka má þessa rannsókn. Sökum þess hversu fáir tóku þátt í rannsókninni skal taka niðurstöðunum með fyrirvara. Rannsakandi telur brýnt að rannsaka þetta frekar, með stærra úrtaki, því ýmislegt bendir til að finna þurfi leiðir til þess að bæta svefn unglinga.
Source: Skemman
Author: Hrefna Hlín Sigurðardóttir 1994
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Topic: Sleep and related disorders
Subfield: Experimental and Cognitive Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7043253129
