Work

Samlíðan og samfélagsviðhorf: Tengsl við hjálparhegðun og viðhorf til flóttamanna

Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Í þessari ritgerð eru tvær rannsóknir. Rannsóknirnar voru framkvæmdar í Listaháskóla Íslands þar sem þátttakendur voru 67 listnemendur á háskólastigi. Meðalaldur þátttakenda var 25,56 ár. Í fyrri rannsókninni var skoðað hvort hægt væri að kalla ómeðvitað fram tilfinningar tengdar samlíðan með því að sýna þátttakendum myndband af þríhyrningum sem hreyfast um rými og virðast eiga í samskiptum við hvorn annan. Þá var skoðað hvort upplifuð samlíðan eftir áhorfið myndi auka líkur á að þátttakendur teldu sig líklega til að sýna hjálparhegðun. Í ljós kom að munur var á tilfinningum tengdum samlíðan og upplifaðri samlíðanarumhyggju milli hópa. Þó virtist það ekki leiða til munar á aukinni hjálpahegðun. Í seinni rannsókninni var fyrst kannað hvort jákvæð tengsl væru á milli upplifaðrar samlíðanar, hjálparhegðunar og viðhorfs til flóttamanna. Þá var gert ráð fyrir að ef þessi tengsl væru til staðar myndu þau haldast þrátt fyrir að tekið væri tillit til kyns þátttakenda. Einnig var athugað hvort hjálparhegðun miðlaði þeim tengslum sem væru á milli samlíðanar og viðhorfa til flóttamanna. Í ljós kom að jákvæð tengsl voru vissulega til staðar á milli allra þátta og tengslin héldu sér þrátt fyrir að stjórnað væri fyrir kyn. Þó virtist vera að hjálparhegðun væri að miðla tengslum samlíðanar og viðhorfs til flóttamanna, þegar hjálparhegðun var haldið fastri virtust tengslin hverfa.
Source: Skemman
Authors: Þórunn Bryndís Kristjánsdóttir 1992, Hrafnhildur Snæbjörnsdóttir 1991
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7043336047
Cites: 57
Cited by:
Related to: 10