Year: 2011
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hve mikið samræmi eða ósamræmi væri í svörum unglinga og foreldra þeirra þegar spurt var út í samverutíma þeirra, tengsl, reglur og eftirlit. Framkvæmdin var tvískipt, annars vegar könnun meðal unglinga í 8. og 9. bekk, sem lögð var fyrir þau í skólanum og hins vegar könnun meðal foreldra sem svarað var á netinu. Svör unglinganna voru síðan pöruð saman við svör foreldranna. Eftir að búið var að sía frá þá unglinga og foreldra sem ekki var hægt að para saman stóðu eftir 79 pör af unglingi og móður og 34 pör af unglingi og föður. Aðeins voru notuð pörin unglingar og mæður í rannsókninni. \nNiðurstöður þessarar rannsóknar, eins og annarra svipaðra rannsókna, benda til nokkurs ósamræmis í svörum unglinga og mæðra þeirra. Ósamræmið var meira þegar spurt var út í huglæg atriði eins og tengsl unglinganna við foreldra sína heldur en atriði sem auðvelt er að telja, eins og matmálstíma. \nMarktæk fylgni var á svörum við spurningum um samveru á virkum dögum, hve oft unglingurinn og móðirin borða saman morgun- og kvöldmat, samræður um persónuleg málefni, ráðleggingar varðandi önnur verk, hvort unglingurinn fylgi reglum, hvort reglur séu um það hvenær unglingurinn eigi að koma heim á kvöldin og um eftirlit foreldra. Engin af þessum spurningum sýndi þó mikla fylgni í svörum. \nLykilorð: Samverutími, unglingar, foreldrar, tengsl, reglur, eftirlit.
Source: Skemman
Author: Hulda Orradóttir
Institutions: Reykjavík University, University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Demography
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7043348309
