Skjátími og koffínneysla Íslendinga í tengslum við svefnlengd
Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Inngangur \nLíkamsklukkan gegnir því hlutverki að gefa einstaklingi hugmynd um kjörtíma svefns. Margir þættir geta komið í veg fyrir þetta ferli sem koma í formi utanaðkomandi merkja. Birta er sterkasti utanaðkomandi þátturinn sem hefur áhrif á líkamsklukkuna. Sýnt hefur verið fram á að birta með ákveðna bylgjulengd frá skjátækjum getur seinkað seytingu melatóníns, ef notkun þeirra er seint á kvöldin, og seinkað þar með svefni. Rannsóknir hafa sýnt að aukin koffínneysla og notkun skjátækja er talið seinka svefni, þá sérstaklega á skóla- og vinnudögum. \n \nMarkmið \nMarkmið verkefnisins var að athuga hvort að samband sé á milli koffínneyslu og skjátíma og einnig hvort að aukin neysla á þessum þáttum hafa tengsl við minni svefnlengd. Skoðað er hvernig neysla hjá Íslendingum er miðað við aðrar rannsóknir sem hafa verið gerðar á Norðurlöndunum. \n \nAðferðir og gagnaöflun \nGögn um svefnlengd, koffínneyslu og skjánotkun úr rannsókninni „Svefnklukka Íslendinga“ frá árinu 2015 voru notuð í þessari rannsókn. \n \nNiðurstöður og umræður \nHátt hlutfall Íslendinga verja meira en 4 klukkutímum við skjátæki. Koffínneysla barna og unglinga var mest á formi gosdrykkja en neysla fullorðinna var mest á formi kaffis. Koffín og skjátími höfðu ekki áhrif á svefnlengd hjá fullorðnum en hjá börnum og unglingum mátti sjá samband milli þessara þátta.
Source: Skemman
Author: Valgerður Anna Ólafsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Sleep and related disorders
Subfield: Experimental and Cognitive Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7043356288
