Skrímsli verður til : af persónum og leikendum í félagslegri útskúfun
Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Höfundur þessarar ritgerðar þekkir til ungra manna sem hafa orðið frétta- og umræðuefni í fjöl- og samfélagsmiðlum fyrir afbrot sín. Grunaðir, handteknir, ákærðir, dæmdir og fordæmdir upp frá því. Þú, lesandi hennar, þekkir e.t.v. persónulega til svipaðra mála þótt ekki séu það endilega glæpamál, í það minnsta ekki enn, gætum við sagt. Í þessari ritgerð er fjallað um hvernig það gerist að ungmenni festast í vítahring andfélagslegrar afstöðu og útskúfunar, einangrast frá meginflæði samfélagsins, eiga ekki greiða samleið með mér og þér en sækja sér félagsskap, viðurkenningu, hlutverk og jafnvel viðurværi í sína líka og oft lengra komna út á jaðar samfélagsins. Saga þeirra er vissulega misjöfn, þeirra sem virðast komnir á endastöð eða á „botninn“, eins og við köllum það, og margir sem þó hófu þá vegferð hafa sem betur fer snúið af leið eða hefur dvalist, um skeið að minnsta kosti, við eitthvað uppbyggilegt. Höfundur þessarar ritgerðar er meðal þeirra sem teljast hafa snúið af leið einhvers staðar um miðja vegu, eða rúmlega það, á milli upphafs og endastöðvar og telur að sú reynsla gefi henni persónulega innsýn í þann veruleika sem fjallað er um í ritgerðinni. Dýpri skilning en ella á þeim veruleika sem þær kenningar og rannsóknir sem teknar eru til athugunar í ritgerðinni lúta að. Höfundur gerir annars vegar skil fræðilegu efni um birtingarmyndir og orsakasamhengi félagslegrar jaðarsetningar og hins vegar og í framhaldi af því ítarlegri athugun sinni á afleiðingum þess að börn ná ekki að þroska hæfileika sína til að móttaka ástúð og gefa í sömu mynt. Með þeirri niðurstöðu að í barnæsku ráðist með því mikilvægur áhrifavaldur um félagslega og persónulega velferð þeirra í framtíðinni.
Source: Skemman
Author: Karlotta Helgadóttir 1988
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7043387577
