Stuðningur við sjálfræði nemenda í íslenskum grunnskólum
Year: 2015
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Markmiðið með rannsókn þessari er að varpa ljósi á stuðning við sjálfræði (e. autonomy support) nemenda í skólastarfi og að öðlast skilning á starfsháttum sem styðja sjálfræði nemenda og þeim þáttum í skólastarfi sem hindra slíkan stuðning. Verkefnið er af tvennum toga. Annars vegar er sjónum beint að starfsháttum í 7.– 10. bekk grunnskóla þar sem kannað var hvernig stuðningi við sjálfræði er háttað. Hins vegar fjallar rannsóknin um það hvernig aðstæður sem styðja og efla sjálfræði nemenda eru skapaðar í skólastarfi og hvaða þættir hindra að slíkar aðstæður séu skapaðar. \nÍ þessari rannsókn merkir sjálfræði nemenda að athafnir þeirra séu í samræmi við eigin vilja og sannfæringu. Til þess þurfa þeir að vera færir um að taka ákvarðanir um eigið nám og skólastarf og fá svigrúm til að geta gert það. Stuðningur við sjálfræði vísar í þessari rannsókn til þess hvaða aðstæður eru skapaðar í skólastarfi (formgerð, andrúmsloft, svigrúm) til að styðja sjálfræði nemenda. \nAðalrannsóknarspurningin er: Hvernig er stuðningi við sjálfræði nemenda í 7.–10. bekk grunnskóla háttað? Til nánari útlistunar: \n1. Hvernig birtist stuðningur við sjálfræði nemenda í skólastarfi? \na. Hver er upplifun nemenda á sjálfræði sínu í skólastarfi og að hvaða marki er stutt við það? \nb. Hvernig birtist stuðningur við sjálfræði nemenda eftir aldri og kyni nemenda? \nc. Hver eru tengsl ánægju og áhuga á námi við stuðning við sjálfræði í grunnskólastarfi á Íslandi? \n2. Hver eru einkenni starfshátta í skólum þar sem sjálfræði nemenda er vel stutt í samanburði við starfshætti í skólum þar sem sjálfræði er lítið stutt? \n3. Hverjar eru hugmyndir kennara um sjálfræði og hvert er mat þeirra á því hvaða þættir í skólastarfinu styðji við sjálfræði og hvað hindri það? \nNotaðar eru samþættar rannsóknaraðferðir. Nemendur í 7.–10. bekk í 14 skólum og kennarar á mið- og unglingastigi í 20 skólum svöruðu spurningalistakönnunum, tekin voru hálfopin viðtöl við kennara og nemendur í sömu skólum og unnið úr vettvangsathugunum sem gerðar voru í kennslustundum hjá viðkomandi kennurum og nemendum. \nFræðilegur bakgrunnur rannsóknarinnar var sóttur í jákvæða sálfræði og sjálfsákvörðunarkenningar. Þessar hreyfingar sækja jafnframt í hugmyndir farsældarhyggjunnar um velfarnað, þar sem litið er á sjálfræði sem grundvöll sálfræðilegrar hámarksvirkni og því grunn að góðu lífi. \nNiðurstöður um það hvernig stuðningi við sjálfræði er háttað á mið- og unglingastigi eru í meginatriðum þær að stuðningur við sjálfræði er víða lítill og ekki í samræmi við það sem Aðalnámskrá grunnskóla, grunnskólalög og alþjóðasamþykktir kveða á um. Hins vegar er mikill munur á milli skólanna í því hvernig stutt er við sjálfræði. Þannig reyndist mikill munur bæði á kennslu- og starfsháttum og einnig á viðhorfum í skólum eftir því hversu mikið þeir studdu sjálfræði nemenda. Þetta endurspeglaðist í ólíkri skólamenningu og formgerð sem styður ólík vinnubrögð og viðhorf. Annars vegar einkenndust starfshættir af verkefnamiðaðri skólamenningu sem felst í því að kennarar leggja áherslu á vinnuferli nemenda, að þeir leggi sig alla fram um að leysa verkefni, og hins vegar af getumiðaðri skólamenningu þar sem dreginn er fram munur á getu nemenda og þannig stuðlað að samkeppni þeirra á milli. Einnig voru starfshættir greindir í ljósi líkans sem sýnir hvar rammar þurfa að vera skýrir og á valdi kennarans og hvar nemendur þurfa að hafa áhrif til að ná sem bestum árangri. \nÍ samræmi við fyrri rannsóknir mátti greina fremur lítinn en marktækan mun í þá veru að eldri nemendur upplifi minni stuðning við sjálfræði en þeir yngri og strákar minni en stelpur. Einnig staðfestir rannsóknin tengsl stuðnings við sjálfræði og velfarnaðar. \nVarpað var ljósi á ýmsa ytri þætti sem kennarar telja að hindri þá í því að styðja sjálfræði nemenda; svo sem kerfislegar kröfur, takmarkaðar bjargir og ósveigjanlegt skipulag sem gerir illmögulegt að mæta einstaklingsþörfum. Innri hindranir, eða hugmyndalegar hindranir í vegi náms og skólastarfs vógu þó þyngra og voru þær greindar eftir hugmyndum Bernsteins um uppeldislega orðræðu. Greining kennsluorðræðunnar sýndi að við þurfum að efla nýja þekkingu með kennurum og nemendum um formgerð sem skapar aðstæður fyrir eflingu sjálfræðis nemenda. Stýringarorðræðan um fræðslu sem meginmarkmið náms og getumiðaða skólamenningu heldur aftur af breytingum og hindrar stuðning við sjálfræði. \nFræðilegt framlag rannsóknarinnar er það að sjónum er beint að hugtakinu sjálfræði í skólastarfi og skilningur er aukinn á starfsháttum, viðhorfi, skólamenningu og formgerð sem styður sjálfræði. Einnig felst það í aukinni þekkingu á því hvernig stuðningi við sjálfræði er háttað á mið- og unglingastigi í íslenskum grunnskólum. Þá er rannsóknin framlag til aukinnar þekkingar á því hvað hindri kennara í að ýta undir sjálfræði nemenda sinna. Hið fræðilega framlag þessarar rannsóknar er um leið hagnýtt því að það ætti að gagnast starfandi kennurum og skólastjórnendum og ekki síst aðilum sem standa að kennaramenntun
Source: Skemman
Author: Ingibjörg Kaldalóns 1968
Language: Icelandic
Subfield: Social Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7043590748
