Tálsýn íslenskra ungmenna á raunveruleg áhrif kannabisefna : mismunandi kennsluaðferðir fyrir nemendur í framhaldsskóla
Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Lögreglumenn þurfa oft á tíðum að hafa afskipti af kannabisneytendum við ýmsar aðstæðum. Aldur neytendanna er því miður farinn að færast neðar og er kominn niður í 12-13 ára ungmenni. Samkvæmt nýjustu rannsóknum þá virðist sem færri ungmenni séu að neyta kannabisefna einu sinni eða oftar, sem er mjög jákvætt, en það er því miður ekki upplifun lögreglunnar. Mörg ungmenni telja að kannabisefni séu skaðlaus og ætla sér aldrei að hætta neyslunni á meðan önnur ungmenni segja að kannabisefni hafi eyðilagt líf þeirra. Kannabisefni eru ekki jafn skaðlaus og margir halda og er það eitt af því sem fjallað verður um í þessari ritgerð. Þar sem margt ungt fólk í dag heldur því samt fram að kannabisefni séu skaðlaus þá var ákveðið að ráðast í að búa til fræðsluefni varðandi kannabisnotkun fyrir ungmenni á framhaldsskólaaldri sem og foreldra/forráðamenn þeirra. Einnig er hægt að nota þetta efni sem kennsluefni fyrir framhaldsskóla og efstu bekki í grunnskóla. Fyrri hluti ritgerðarinnar fjallar m.a. almennt um kannabisefni, hvaða áhrif þau hafa á fólk, skaðsemi þeirra og meðferðarúrræði. Seinni hlutinn fjallar um kennsluaðferðir og hvers vegna höfundur ákvað að notast við fyrirlestraraðferðina og glærukynningar við kennslu á kannabisefnum.
Source: Skemman
Author: Þóra Reyn Rögnvaldsdóttir 1982
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Pharmacology (medical)
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7043658766
