Streita, kulnunareinkenni og bjargráð á meðal hjúkrunarfræðinga
Year: 2017
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Bakgrunnur rannsóknar: Starf hjúkrunarfræðinga hefur tekið miklum breytingum á undanförnum áratugum sem ýta undir streitu og kulnun í starfi með áhrifum á andlega og líkamlega heilsu. Mikilvægt er að sporna við þessari þróun með notkun bjargráða. Tilgangur rannsóknar: Að skoða streitueinkenni á meðal hjúkrunarfræðinga síðastliðinn mánuð, persónu-, vinnu- og skjólstæðingstengd kulnunareinkenni og bjargráð þeirra í erfiðum aðstæðum. Aðferð: Megindleg lýsandi þversniðsrannsókn með tilgangsúrtaki. Alls voru 425 hjúkrunarfræðingum á tveimur sviðum á Landspítala háskólasjúkrahúsi og á Sjúkrahúsinu á Akureyri boðin þátttaka. Rannsóknin er hluti af áframhaldandi rannsókn. SPSS 22 tölfræðiforritið var notað til gagnavinnslu. Notaðir voru spurningalistarnir Perceived Stress Scale (PSS), Copenhagen Burnout Inventory (CBI) og Ways of Coping (WOC). Niðurstöður: Unnið var með gögn frá 164 þátttakendum. Allir spurningalistarnir sýndu góðan áreiðanleika (Cronbach Alpha). Megin niðurstöður sýndu að þátttakendur yngri en 40 ára skoruðu marktækt hærra á streitukvarðanum (PSS) en þeir sem voru eldri en 40 ára (p<0,001). Hjúkrunarfræðingar með starfsaldur undir 10 ár sýndu marktækt alvarlegri streitueinkenni en þeir sem voru með starfsaldur hærri en 10 ár (p<0,004). Yngri en 40 ára sýndu marktækt verri kulnunareinkenni en þeir sem eldri voru: persónutengd (p<0,011), starfstengd (p<0,018), skjólstæðingstengd (p<0,017). Marktækur munur var á lýsingu þátttakenda á mati þeirra á hvort mönnun væri í góðu lagi á vinnustað, á skurðlækningasviði (60%), á lyflækningasviði(40%), (p<0,001). Mönnun var frekar talin óviðunandi eða algerlega óviðunandi af 58% hjúkrunarfræðinga á lyflæknissviði, á meðan 24% hjúkrunarfræðinga á skurðlækningasviði lýstu henni þannig. Ályktanir: Þó taka beri niðurstöðum með varúð vegna lítils úrtaks gefa þær sterkar vísbendingar um að yngri hjúkrunarfræðingar og styttri starfsaldur auki líkur á óvinnutengdri streitu og kulnun. Frekari rannsókna er þörf til að meta sérstaklega líðan og bjargráð hjúkrunarfræðinga með mismunandi starfsaldur og frá ólíku vinnuumhverfi. Mælitækin PSS og CBI henta vel í rannsóknir á hjúkrunafræðingum þegar skoðuð eru streita og kulnun, en þörf er á frekari þróun á WOC spurningalistanum fyrir rannsóknir á bjargráðum hjúkrunarfræðinga. Lykilorð: Streita, kulnun, bjargráð.
Source: Skemman
Author: Berglind Harpa Svavarsdóttir 1975
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7043661727
