Tilkynningar sem fóru í könnun árin 2012–2016 hjá Barnavernd Reykjavíkur
Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Markmið rannsóknarinnar var að skoða hvaða tilkynningar fóru í könnun hjá Barnavernd Reykjavíkur á árunum 2012–2016, hvort breytingar hefðu orðið á eðli mála sem fóru í könnun og hvort þau mál væru frábrugðin þeim málum sem ekki voru könnuð nánar. Notast var við megindlega rannsóknaraðferð þar sem unnið var úr fyrirliggjandi gögnum Barnaverndar Reykjavíkur. Unnið var úr gögnum í SPSS tölfræðiforritinu. Helstu niðurstöður leiddu í ljós að tilkynningum til barnaverndar fór fjölgandi ár frá ári. Algengasti misbrestur sem tilkynnt var um varðandi aðbúnað barna var vanræksla. Algengast var að tilkynningar varðandi vanrækslu færu í könnun og fjölgaði þeim jafnt og þétt á milli ára. Tilkynningar vegna yngri barna fóru oftar í könnun samanborið við eldri börn. Tilkynningar varðandi börn sem voru búsett hjá einstæðum mæðrum sínum fóru oftar í könnun samanborið við börn sem voru búsett hjá báðum foreldrum sínum. Ef skoðaðar eru þær tilkynningar sem fóru síður í könnun var algengast að áhættuhegðun barna væri ekki könnuð nánar samanborið við aðrar tegundir tilkynninga. \n \nLykilhugtök: Barnavernd, tilkynningar, ofbeldi, vanræksla, áhættuhegðun, könnun máls.
Source: Skemman
Author: Dagný Baldursdóttir 1986
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Child Abuse and Trauma
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7043670582
