Tengsl styrks í neðri útlimum og snúningsafls í bol og álagsmeiðsla í öxl hjá kvenkyns handboltaleikmönnum
Year: 2024
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Bakgrunnur. Handbolti er íþrótt þar sem algengi axlarmeiðsla er hátt og geta þau verið hamlandi fyrir handboltafólk. Rannsóknir á öðrum kastíþróttagreinum hafa sýnt mikilvægi styrks í neðri útlimum og bol fyrir kasthreyfinguna. Lítið er þó vitað um áhrif minnkaðs styrks í neðri útlimum og snúningsafls í bol á þróun álagsmeiðsla í öxl á meðal handboltaleikmanna. Markmið rannsóknarinnar var að kanna tengsl á milli styrks í neðri útlimum og snúningsafls í bol og álagsmeiðsla í öxl hjá konum í efstu deild í handbolta. Rannsóknartilgátan var að þeir leikmenn sem kæmu verr út í styrktarmælingunum á undirbúningstímabili glímdu frekar við álagsmeiðsli í öxl. Aðferðir. Rannsóknin var framskyggn rannsókn. Þátttakendur voru 31 leikmaður í Olísdeild kvenna í handbolta. \nHámarksstyrkur í neðri útlimum og hámarks snúningsafl í bol var mælt á undirbúningstímabili. Álagsmeiðsli í kastöxl voru metin vikulega yfir keppnistímabilið með Oslo sports trauma research overuse injury spurningalistanum (OSTRC-O2) og huglægt mat á álagið á kastöxl var metið með Borg álagskvarðanum. Gagnaúrvinnsla fór fram í Jamovi með Spearman’s rho fylgnistuðli og blandaðri dreifnigreiningu. Niðurstöður. Algengi álagsmeiðsla í kastöxl var 25% og algengi alvarlegra álagsmeiðsla 4,7%. Marktæk fylgni fannst á milli hærri styrks í neðri útlimum og algengi alvarlegri álagsmeiðsla (rs = 0,421, p= 0,018). Blönduð dreifnigreining sýndi meginhrif á milli aukins álags á kastöxl og fjölda alvarleikastiga (p= <,001) og víxlhrif á milli bæði hærri styrks í neðri útlimum og aukins álags á kastöxl (p=0,002) annars vegar og aukins snúningsafls í bolvöðvum og aukins álags á kastöxl (p=0,002) hins vegar á fjölda alvarleikastiga á OSTRC-O2 spurningalistanum. Ályktun. Leikmenn sem voru sterkari í neðri útlimum og með aukið snúningsafl í bolvöðvum skoruðu fleiri alvarleikastig á OSTRC-O2 listanum eftir því sem huglægt mat á álagi jókst. Niðurstöðurnar eru þvert á rannsóknartilgáturnar. Þörf er því á frekari rannsóknum til að kanna aðra mögulega áhrifsþætti.
Source: Skemman
Author: Unnar Arnarsson
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Surgery
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7043747380
