Work

Tengsl bátsbeinsfalls við álag á fjarlægan þriðjung fótleggs hjá langhlaupurum

Year: 2024
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Flest meiðsli sem langhlauparar lenda í eru álagsmeiðsli. Miðlæg beinhimnubólga er dæmi um slík meiðsli og hefur verið tengd við aukið bátsbeinsfall en ekki er vitað hvers vegna. Hugsanlegt er að aukið bátsbeinsfall valdi breytingum á kröftum sem verka á fjarlægan þriðjung fótleggs en skortur er á rannsóknum á því. Þessi rannsókn gengur út á að skoða tengsl bátsbeinsfalls við álag tengt gólfkrafti á fótlegg hjá langhlaupurum og sjá hvort munur sé á bátsbeinsfalli við hlaup og fótleggsálagi hjá einstaklingum með og án sögu um miðlæga beinhimnubólgu. Þetta var framkvæmt með því að mæla bátsbeinsfall í kyrrstöðu og við hlaup og skoða gólfkrafta sem verka um ökkla, en það eru sömu gólfkraftar og verka á fjarlægan þriðjung fótleggs. Gögnin voru skoðuð með tilliti til fylgni milli bátsbeinsfalls og fótleggsálags auk þess sem kraftar á fjarlægan þriðjung fótleggs og bátsbeinsfall við hlaup voru borin saman hjá hlaupurum með og án sögu um miðlæga beinhimnubólgu. Niðurstöður rannsóknarinnar voru þær að marktæk fylgni fannst milli hámarksskerkrafts frá gólfkrafti og bátsbeinsfalls við hlaup (r=-0,408, p<0,001), auk marktækrar fylgni milli atlags skerkrafts og bátsbeinsfalls við hlaup (r=-0,427, p<0,001). Ekki fannst marktæk fylgni milli ásálags og bátsbeinsfalls við hlaup. Fylgni milli niðurstöðu bátsbeinsfallsprófs og álags á fótlegg var ómarktæk. Ekki fannst marktækur munur á bátsbeinsfalli við hlaup hjá einstaklingum með og án sögu um miðlæga beinhimnubólgu. Ekki fannst heldur munur á álagi á fótlegg sökum gólfkrafts hjá þessum tveim hópum nema ef leiðrétt var fyrir bátsbeinsfalli við hlaup, þá fannst marktækur munur á atlagi skerkrafts milli hópanna (p=0,011). Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að bátsbeinsfall hafi áhrif á skerálag á fótlegg og er möguleiki að það ýti undir álagsmeiðsli í fjarlægum þriðjungi fótleggs. Þó ekki hafi fundist marktækur munur milli einstaklinga með og án beinhimnubólgu hvað varðar álag og bátsbeinsfall við hlaup getur verið að það sé vegna þess hve fáir þátttakendur voru í rannsókninni og því þörf á að rannsaka það betur með fleiri þátttakendum.
Source: Skemman
Author: Reynir Zoëga
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7043804470
Cites: 80
Cited by:
Related to: 10