Work

Tengsl áhættuþátta við upphafsaldur reglulegrar áfengisneyslu: Hlutverk hegðunarvandamála, kynferðislegrar misnotkunar, heimilisofbeldis og áfengisneyslu foreldra

Year: 2013
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Tilgangur þessarar rannsóknar var að athuga tengsl heimilisaðstæðna og einstaklingsþátta á aldur við upphaf reglulegrar drykkju. Sjónum var beint að kynferðislegri misnotkun, heimilisofbeldi, áfengisneyslu foreldra og hegðunarvandamálum sem einkenna hegðunarröskun. Rannsóknir hafa sýnt að þessir áhættuþættir í æsku hafi áhrif á hvenær fólk hefur reglulega neyslu. Því var talið að þeir sem glími við þessa áhættuþætti séu yngri þegar þeir hefja reglulega áfengisneyslu en þeir sem ekki glíma við þessi vandamál. Þátttakendur rannsóknarinnar eru þeir sem eru með staðfestan fíknsjúkdóm og komið hafa til innlagnar á sjúkrahúsið Vog eða fjölskyldumeðlimir fíknsjúklinga. 1098 einstaklingar, þar af 778 karlmenn og 329 konur voru metin með hálfstaðlaða geðgreiningarviðtalinu SSAGA-II þar sem spurt er ítarlega um áfengisneyslu fólks og áhættuhætti sem taldir eru tengjast áfengisneyslu. Aldursbil einstaklinga var frá 20-86 ára og meðalaldur var 51,41 ár. Niðurstöður sýndu að þeir sem upplifðu hegðunarvandamál og ofdrykkju foreldra voru marktækt yngri þegar þeir fóru að drekka reglulega en þeir sem ekki upplifðu þessa áhættuþætti. Sömu niðurstöður voru fyrir áhættuþættina kynferðislega misnotkun og heimilisofbeldi en einungis hjá konum. Einnig sýndu niðurstöður að allir áhættuþættirnir hafa neikvæð tengsl við upphafsaldur reglulegrar neyslu hjá konum, en þættirnir hegðunarvandi og heimilisofbeldi spáðu best fyrir um upphafsaldur reglulegrar neyslu. Hjá körlum sýndu niðurstöður marghliða aðfallsgreiningar að einungis var neikvætt samband tveggja áhættuþátta við upphafsaldur reglulegrar neyslu, eða hegðunarvandamál og heimilisofbeldi. Rannsóknin undirstrikar alvarleika hegðunarvandamála sem áhættuþátt fyrir að hefja snemma reglulega neyslu.
Source: Skemman
Authors: Þóra Óskarsdóttir 1985, Sara Huld Jónsdóttir 1985
Language: Icelandic
Subfield: Epidemiology
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7043846994
Cites: 45
Cited by:
Related to: 10