Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Verkefni þetta er heimildaritgerð og er markmið hennar að sýna fram á ýmis heilsusamleg áhrif sem tómstundir geta haft á eldri borgara. Einnig að sýna fram á mikilvægi tómstundaiðkunar fyrir þennan aldurshóp þegar kemur að andlegri sem og líkamlegri vellíðan. Vellíðan og ánægja ætti að einkenna efri árin. Eldri borgurum fjölgar með hverju árinu og eiga eftir að verða töluvert fleiri á komandi árum, líkt og mannfjöldaspár hafa gert ráð fyrir. Rannsóknir benda til þess að eldri borgarar sem temja sér tómstundaiðkun búa við betri heilsu og þar af leiðandi væri hægt að fækka tilfellum andlegra og líkamlegra kvilla með tómstundaiðkun. Gott og öflugt tómstundastarf er mjög mikilvægt fyrir eldri borgara þar sem það er ákveðin forvörn og því þarf að tryggja að uppbyggjandi tómstundastörf séu í boði fyrir þá.
Source: Skemman
Author: Aldís Kara Lúðvíksdóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7043968522
