Tengsl fyrirtækjamenningar og þekkingarmiðlunar og tengsl þekkingarmiðlunar við rekstrarárangur fyrirtækja
Year: 2014
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Tilgangur þessarar rannsóknar var að athuga hvort að sérstakir þættir fyrirtækjamenningar hefðu tengsl við þekkingarmiðlun, þeir voru formleg stefna, boðleiðir, miðlunarstefna, traust á milli starfsmanna, traust til stjórnenda, stuðningur stjórnenda við þekkingarmiðlun, hvatning stjórnenda til miðlunar þekkingar og upplýsingakerfi. Þá voru einnig athuguð tengsl þekkingarmiðlunar við rekstrarárangur fyrirtækja sem mældur var með níu breytum. Þær voru gæði þjónustu, ánægja viðskiptavina, lækkun kostnaðar, aukinn hagnaður, aukin hæfni starfsfólks, ánægja starfsfólks, aukin nýsköpun, aukin vörugæði og að halda í gott starfsfólk. Þátttakendur voru stjórnendur 300 stærstu fyrirtækjanna samkvæmt lista Frjálsrar verslunar 2013 og rafrænn spurningarlisti var sendur á þá með tölvupósti. Alls voru 136 þátttakendur sem luku við rannsóknina sem er 45,3% svarhlutfall, af þeim voru 97 karlar og 34 konur. Meðalaldur þátttakenda var 51 ár. Niðurstöður sýndu að breyturnar formleg stefna, boðleiðir, miðlunarstefna, traust á milli starfsmanna og traust til stjórnenda höfðu tengsl við þekkingarmiðlun. Tengsl þekkingarmiðlunar við rekstrarárangur voru til staðar á breytunum ánægja viðskiptavina, lækkun kostnaðar, ánægja starfsfólks, aukin nýsköpun, aukin vörugæði og að halda í gott starfsfólk. Þegar menningareinkenni innan fyrirtækja voru skoðuð kom í ljós að flest þeirra eða 50% sögðu fjölskyldumenningu vera ríkjandi en hún er talin styðja við þekkingarmiðlun. Þá má gera ráð fyrir að þeir þættir fyrirtækjamenningar sem mældust marktækir stuðli að þekkingarmenningu fyrirtækja.
Source: Skemman
Author: Elva Dögg Pálsdóttir 1985
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Information Systems and Management
Field: Decision Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7043971922
