Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Ritgerðin fjallar um reynslu og upplifun kennara af stuðningi í kennslu við nemendur með \nsérþarfir á miðstigi í almennum grunnskólum. Skóli án aðgreiningar er opinber menntastefna \ná Íslandi og eru kennarar stór þáttur í þróun og framkvæmd hennar. Þess vegna geta \nkennarar gefið góða innsýn í skólastarf án aðgreiningar og upplýsingar um hvernig hægt sé \nað tryggja nemendum með sérþarfir þann stuðning sem þeir eiga rétt á. Ritgerðin byggir á \neigindlegu rannsóknarverkefni þar sem tekin voru hálfopin viðtöl við þrjá kennara sem kenna \ná miðstigi í grunnskólum í einu bæjarfélagi á höfuðborgarsvæðinu. Markmið rannsóknarinnar \nvar að fá fram upplifanir og skoðanir kennaranna á stuðningi við börn með sérþarfir í námi, \nmeð það í huga hvernig hægt er að bæta stuðning við þennan hóp nemenda. Niðurstöður \nrannsóknarinnar sýndu að kennararnir höfðu almennt jákvæðar hugmyndir um skólastefnu \num skóla án aðgreiningar en að framkvæmd hennar væri of flókin miðað við núverandi \nfjárframlög til skólastarfs og bekkjastærðir. Niðurstöður verkefnisins benda til þess að \nkennurum finnist krefjandi hegðun nemenda vera fyrirstaða í kennslustundum án \naðgreiningar og líti á námsver og aðgreinda sérkennslu sem góða lausn við slíkum vanda. \nNiðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að læknisfræðilegt sjónarhorn á fötlun sé ennþá \nstór áhrifaþáttur í skólaumhverfinu og að auka þurfi fræðslu til kennara um félagslegt \nsjónarhorn á fötlun til að þeir öðlist betri skilning á réttindum barna.
Source: Skemman
Author: Birna Dögg M. Sigrúnardóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7043981076
