Work

Viðhorf afreksíþróttafólks til sálfræðiþjónustu : hafa mismunandi víddir íþróttatengdrar sjálfsmyndar áhrif á viðhorf til sálfræðiþjónustu?

Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Bakgrunnur: Geðheilsuvandi íþróttafólks hefur fengið aukna athygli síðustu ár og hefur mikilvægi góðrar geðheilsu íþróttafólks verið staðfest. Munur á milli þeirra nema sem stunda íþróttir og þeirra sem stunda ekki íþróttir er verulegur hvað varðar viðhorf til sálfræðiþjónustu. Einstaklingar sem eru ekki í íþróttum hafa mun jákvæðara viðhorf til þessarar þjónustu heldur en íþróttafólk. Íþróttafólk leitar síður eftir sálfræðiþjónustu en almenningur. Íþróttatengd sjálfsmynd spilar stóran part hvað varðar geðheilsu íþróttafólks og getur sterk íþróttatengd sjálfsmynd aukið varnarleysi þessa hóps gagnvart ýmsum geðheilsuvanda. \nMarkmið: Markmið þessarar rannsóknar var að athuga viðhorf afreksíþróttafólks til sálfræðiþjónustu og mögulegan mun á viðhorfum íþróttafólks og háskólanema, með tilliti til íþróttatengdrar sjálfsmyndar. Einnig var skoðað hvort mismunandi víddir íþróttatengdrar sjálfsmyndar tengist mismunandi viðhorfum til sálfræðiþjónustu. Áform (e. intent) og sérfræðiþekking (e. expertness) voru mikið skoðuð í tengslum við íslenska útgáfu I-BAPS sjálfsmatslistans. \nAðferð: Notuð voru fyrirliggjandi gögn úr þversniðsrannsókn. Sem mælitæki voru eftirfarandi spurningarlistar notaðir: Íslensk útgáfa af ,,trú um sálfræðilega þjónustu’’ sjálfsmatslistanum (I-BAPS) og Athletic Identity Measurement Scale (AIMS). Þátttakendur í rannsókninni voru háskólanemar (n=371), íþróttafólk (n=46) og afreksíþróttafólk (n=138) á aldrinum 18-36 ára. \nNiðurstöður: Helstu niðurstöður rannsóknarinnar voru að munur var á milli háskólanema og afreksíþróttafólks hvað varðar vilja til að leita sér hjálpar hjá sálfræðingi, þ.e.a.s háskólafólk sýnir marktækt meiri áform til hjálparleitar en afreksíþróttafólk. Einnig var munur á háskólanemum og almennu íþróttafólki hvað varðar viðhorf til sérfræðiþekkingar (e. expertise) sálfræðinga. Þar sýndi almennt íþróttafólk marktækt neikvæðara viðhorf til sérfræðiþekkingar sálfræðinga samanborið við afreksíþróttafólk og háskólanema. Marktækur munur var á íþróttatengdri sálfsmynd milli afreksíþróttafólks og háskólanema. Ekki var munur á milli kynja meðal íþróttafólks hvað varðar íþróttatengda sjálfsmynd og stangast það á við fyrri rannsóknir þar sem talið er að konur séu almennt með lægri íþróttatengda sjálfsmynd heldur en karlar. \nLykilhugtök: Viðhorf, áform, sérfræðiþekking, hjálparleit, íþróttatengd sjálfsmynd, afreksíþróttafólk, háskólanemar.
Source: Skemman
Authors: Ásdís Eir Þorsteinsdóttir, Tinna Karen Fylkisdóttir
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7043995002
Cites: 39
Cited by:
Related to: 10