Work

Virtual Reality Game for Social Cue Detection Training

Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Hæfileikinn að bera kennsl á líkamstjáningu og hvernig maður hefur samskipti getur verið mikilvægur í margs konar félagslegum aðstæðum. Ekki allir komast á það stig í félagsfærni sem þarf fyrir ákveðin störf og jafnvel ekki fyrir dagleg mannleg samskipti. Til dæmis, á sumt fólk með einhverfu í erfiðleikum með að þekkja svipbrigði. Fyrir þjálfun í þessu, er oft þörf á alvöru aðstæðum, sem setja takmarkanir á magn og tegund af þjálfun sem fólk getur fengið. Sýndarumhverfi, sérstaklega gert fyrir þennan tilgang gæti minnkað þessar takmarkanir. Þessi ritgerð lýsir frumgerð fyrir sýndarveruleikaleik til þess að þjálfa fólk í að bera kennsl á líkamstjáningu og hvernig maður hefur samskipti við fólk. Markmiðið er að gefa sérfræðingum tæki á frumhugmyndastigi þar sem nokkur háþróuð tæknifyrirbæri eru tengd saman í eitt kerfi sem hægt er að þróa lengra. Markmið þáttakanda í leiknum er að selja eitthvað til sýndarmanneskja sem eru á gangi á almenningssvæði. Það eru bara sumir sem hafa áhuga á að kaupa og það sést á líkamstjáningu þeirra. Hegðun fólksins byggist á rannsóknum á líkamstjáningu. Einkum hegðun sem tengist því hvort einhverjum líkar vel við einhvern svo sem bros, að kinka kolli og snúningur á líkama og líka hegðun tengd því að komast hjá því að eiga samskipti. Útkoman er fullvirk frumgerð þar sem notandinn getur átt í samskiptum við sýndarmanneskjur og lokið söluverkefni með því að nota rödd og snúning á höfði sem inntak. Kerfið sýnir grunnvirkni og hugmynd að lokakerfi, með möguleikum fyrir meiri þróun á persónuhegðun, útliti á sýndarmanneskjum, og náttúrulegum samskiptun.
Source: Skemman
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7044094627
Cites: 28
Cited by:
Related to: 10