Work

Túlkun á niðurstöðum greiningarprófsins Hljóðfærni: Aldursviðmið fyrir Hljóðfærni

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Læsi er talin vera grunnur að þátttöku í efnahagslegu, samfélagslegu, pólitísku og menningarlegu lífi nútímasamfélags. Undir hugtakið læsi falla margir þættir, en einn sá mikilvægasti er hljóðkerfisvitund. Hljóðkerfisvitund er það næmi sem einstaklingur hefur á tungumál sitt og uppbyggingu þess. Börn byrja snemma á lífsleiðinni að þróa hljóðkerfisvitundina og hún styrkist stigvaxandi með aukinni málþekkingu, bæði á tal- og ritmáli. Hljóðkerfisvitund reynir á tvenns konar hæfni, annars vegar að bera kennsl á málhljóð og bera þau saman við önnur málhljóð og hins vegar að vinna með þessi málhljóð stök eða samhliða öðrum málhljóðum. Þróun hljóðkerfisvitundar er mjög áberandi í lestrarkennslu vegna þess forspárgildis sem hún hefur og hversu vel hún metur framfarir í lestrarfærni barna. Prófið Hljóðfærni byggir á kenningum um þróun hljóðkerfisvitundar, kenningum einfalda lestrarlíkansins og kenningum sem snúa að tengslum hljóðkerfisvitundar og lesturs. Prófið fæst við það að kortleggja nánar vanda barna í tengslum við frávik í hljóðkerfisvitund og að koma með tillögur að kennslufræðilegu inngripi, til að styrkja lestrarfærni þeirra. Hljóðfærni inniheldur fimm prófhluta sem allir mæla mismunandi svið hljóða- og hljóðkerfisvitundar. Alls hefur Hljóðfærni 13 undirpróf sem hvert um sig reynir hljóðkerfisvitund með ólíkum hætti. Prófþættirnir fimm eru; rím (e. rhyming), samtenging (e. blending), sundurgreining (e. segmentation), hljóðgreining (e. isolation) og eyðing orðhluta, atkvæða og hljóða (e. deletion). Skölun er ferlið sem liggur að baki því að tengja saman tölur eða stig við frammistöðu einstaklings á prófi til þess að fá stigakvarða. Stigakvarðarnir vísa til talna sem einstaklingar fá úthlutað á prófi út frá frammistöðu þeirra sem á að endurspegla vaxandi árangur eða færni. Aldursviðmið er tölfræðileg lýsing frammistöðu einstaklings miðað við það þýði sem aldursviðmiðin voru sniðin að. Aldursviðmiðin eru búin til út frá stöðluðum úrtakshópi og eru þau síðan notuð til þess að meta frammistöðu fyrir aðra einstaklinga á sama prófi. Prófið Hljóðfærni er greinandi próf sem ætlað er að kortleggja vanda í hljóðkerfisvitund barna í 1. bekk grunnskóla. Upphafleg aldursviðmið prófsins glötuðust og því snýr þetta verkefni að gerð nýrra aldursviðmiða fyrir prófið svo hægt sé að bera saman framvindu í lestrarfærni barns við jafnaldra. Þátttakendur prófsins voru 314 börn á Íslandi í 1. bekk grunnskóla. Nemendum var skipt upp í þrjú aldursbil, svo hægt væri að prófa hljóðkerfisvitund með þroska þeirra í huga. Prófið var lagt fyrir tvisvar sinnum, einu sinni að vetri til hóps nemenda og einu sinni að vori til annars hóps nemenda. Einnig var 31 nemandi valinn í réttmætisúrtak fyrir prófið. Aldursviðmið voru gerð fyrir öll undirpróf, alla prófþætti og síðar heildartölur. Hljóðkerfisvitund barna þróast hratt milli mánaða, sem birtist í niðurstöðum prófsins út frá mismunandi aldursviðmiðum fyrir úrtökin tvö. Það á við um aldursviðmið fyrir sérstaka prófþætti og einnig fyrir aldursviðmið heildartölu prófsins.
Source: Skemman
Authors: Snædís Sól Harðardóttir 2000-, Kristín Klara Birgisdóttir 2000-
Language: Icelandic
Field: Psychology
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7044115113
Cites: 31
Cited by:
Related to: 10