Work

Upptaka af Kirsuberjagarðinum

Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Útskriftarnemar leikarabrautar takast á við eitt af ástsælustu verkum leikbókmenntanna, Kirsuberjagarðinn, eftir Anton Tsjekhov í leikstjórn Eddu Bjargar Eyjólfsdóttur. Þetta dásamlega verk fellur aldrei úr gildi og á alltaf erindi við okkur sama hvaða tímar eru. Ljubov Andreévna og hennar fjölskylda og fylgdarlið koma heim á fallega ættaróðalið með kirsuberjagarðinum sem á að fara á uppboð vegna vanrækslu þeirra og eyðslu. Hér er fjallað um mennskuna, um manneskjuna í allri sinni dásamlegu, ófullkomnu og grátbroslegu dýrð. Allt tekur enda í þessum heimi og allt er breytingum háð, en óttinn við breytingar getur verið lamandi. Kirsuberjagarðurinn býr í raun í hjörtum okkar allra, það eina sem við þurfum að gera er að hugsa vel um hann og elska.
Source: Skemman
Author: Jón Bjarni Ísaksson
Language: Icelandic
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7044137992
Cites: 5
Cited by:
Related to: 10