Well-being during school lessons among boys and girls in 5th to 7th grade in elementary schools in Iceland: The effects of school, family and peer related factors
Year: 2011
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: Markmið rannsóknarinnar var að kanna líðan í kennslustundum á meðal íslenskra drengja og stúlkna í 5. -7. bekk grunnskóla. Einnig að kanna hvort þættir tengdir skóla, fjölskyldu og jafningjahópum geti spáð fyrir um líðan í kennslustundum. Notast var við gögn úr könnun Rannsóknar og greiningar, þar sem spurningalistar voru lagðir fyrir alla nemendur í 5. – 7. bekk grunnskóla á Íslandi í febrúar 2009. Nánast allir nemendur sem mættu daginn sem spurningalistinn var lagður fyrir tóku þátt. Tvíundagreining (multivariate logistic regression) var notuð til að kanna aðal-, miðlunar- og samvirkniáhrif. Niðurstöður sýndu að þættir tengdir skóla, fjölskyldu og jafningjahópum spáðu allir marktækt fyrir um vellíðan í kennslustundum. Þær sýndu líka að breytur tengdar skólanum skýrðu kynjamuninn á vellíðan í kennslustundum og að finnast námsefnið í skólanum skemmtilegt miðlaði fullkomlega áhrifum kyns á vellíðan í kennslustundum. Það hafði sterkari áhrif á vellíðan drengja en stúlkna í kennslustunum að öll fjölskyldan talaði oft saman. Aftur á móti hafði það sterkari áhrif á vellíðan stúlkna en drengja í kennslustundum að eiga marga vini í skólanum. Niðurstöður gefa til kynna að þættir tengdir skóla, fjölskyldu og jafningjahópum hafi áhrif á vellíðan í kennslustundum. Þær undirstrika líka mikilvægi þess að námsefni skólanna höfði jafnt til stúlkna sem drengja.
Source: Skemman
Author: Áslaug Pálsdóttir 1978-
Institution: Reykjavík University
Language: Icelandic
Subfield: Social Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7044139841
