Work

Þjónandi forysta og starfsánægja kennara í grunnskólum : efling og áhrif hennar

Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Hér á landi hefur lítið verið fjallað um starfsánægju kennara og tengsl hennar við þjónandi forystu. Það sem þó hefur komið fram bæði hér á landi og erlendis er að stjórnandi sem beitir aðferðum þjónandi forystu getur haft jákvæði áhrif á starfsánægju kennara. Markmið þessarar ritgerðar er því að skoða hvort og þá hvernig hægt sé að efla starfsánægju kennara með því að beita þjónandi forystuháttum með tilliti til eflingar. Ritgerðin er yfirlitsrannsókn sem felur í sér úrvinnslu rannsókna og fræðilegra heimilda. Leitað var gagna frá janúar 2017 til febrúar 2019. Heimildaleit var gerð í gagnasöfnunum Leitir.is, ProQuest, Eric og Web of Science. Slegin voru inn leitarorðin þjónandi forysta, hlustun, efling, starfsánægja, skólar, servant leadership, empowerment og listening. Þá voru einnig skoðaðar heimildaskrár áhugaverðra greina og rannsókna og í kjölfarið voru heimildir handvaldar. Fræðilegur bakgrunnur byggir á hugmyndafræði Robert K. Greenleafs um þjónandi forystu. Niðurstöðurnar eru þær að unnt er að auka starfsánægju kennara með því að skólastjórnandi beiti aðferðum þjónandi forystu með áherslu á eflingu og er það í samræmi við niðurstöður annarra rannsókna á þessu sviði. Því má leiða líkur að því að það yrði skólastjórnendum og öðrum til framdráttar að styrkja þjónandi forystu innan skólanna í þeim tilgangi að auka starfsánægju kennara.
Source: Skemman
Author: Þórgunnur Stefánsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7044197907
Cites: 67
Cited by:
Related to: 10