Þjónusta við börn með fjölþættan vanda: Sýn fjögurra sveitarfélaga og áskoranir í framkvæmd
Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Á undanförnum árum hefur verið umræða um úrræðaleysi fyrir börn með fjölþættan vanda. Fjölþættur vandi barna á Íslandi er flókið málefni sem kallar á samþætta þjónustu, þar sem börn með slíkan vanda þurfa sérhæfða og umfangsmikla aðstoð. Þótt hugtakið sé ekki skilgreint í lögum er það almennt notað til að lýsa börnum með alvarlegar þroska- og geðrænar raskanir og hegðunarvanda sem hafa áhrif á daglegt líf þeirra. Árið 2023 falla í kringum 127 börn undir þennan flokk og njóta þjónustu á 2. og 3. stigi samkvæmt lögum sem tryggja samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna. Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á hvernig núverandi þjónusta við börn með fjölþættan vanda er skipulögð hjá völdum sveitarfélögum, hver sýn þeirra er á þjónustuna og hver framtíðarsýn þeirra er. Rannsóknin beinist að því að skoða hvernig fjögur valin sveitarfélög nýta það svigrúm sem þau hafa innan rammalöggjafar til að skipuleggja þjónustuna, sem felur jafnframt í sér þær lögbundnu skyldur sem þeim ber að uppfylla. Áhersla var lögð á að greina stefnu sveitarfélaganna í málaflokknum, hvernig þau haga úrræðum sínum og þjónustu, fá innsýn í fjárhagsáætlanir þeirra og afla upplýsinga um fjölda þjónustuþega með fjölþættan vanda í hverju sveitarfélagi fyrir sig. Tekin voru sérfræðiviðtöl við fjögur sveitarfélög á Íslandi og voru viðmælendur lykilstjórnendur í málefnum barna með fjölþættan vanda innan þessara sveitarfélaga og/eða starfsmönnum sem sinna málefnaflokknum daglega. Sveitarfélögin voru eftirfarandi; Kópavogur, Akureyrarbær, Ísafjarðarbær og Hornafjörður. Niðurstöður sýna fram á ósamræmi er í skilgreiningu sveitarfélaga á fjölþættum vanda barna. Þjónustan er breytileg eftir stærð, staðsetningu og aðstæðum sveitarfélaga. Þjónustan sem veitt er í sveitarfélögunum byggir á mismunandi lagagrundvelli og fer það eftir þjónustuþörf barns hverju sinni. Sveitarfélögin leggja öll áherslu á einstaklingsmiðaða þjónustu og snemmtækan stuðning við börn með fjölþættan vanda. Ásamt því að ítreka mikilvægi samstarfs ríkis og sveitarfélaga til að þróa, fjármagna og reka úrræði sem tryggja jafnræði og bæta þjónustu við börn með fjölþættan vanda. Efnisorð: Fjölþættur vandi barna, samþætt þjónusta, sveitarfélög, löggjöf
Source: Skemman
Author: Elvar Einir Oddsson
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Child Welfare and Adoption
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7044199094
