Þetta var erfiðasta hlutverk sem ég hef fengið : áhrif Alzheimer sjúkdóms á aðstandendur : andleg og líkamleg áhrif og reynsla af þjónustu sem veitt var í sjúkdómsferlinu
Year: 2018
Type: dissertation
Abstract: Bakgrunnur: Alzheimer sjúkdómurinn er form heilabilunar og eru fylgikvillar sjúkdómsins flóknir og erfiðir. Áhrif sjúkdómsins á nánustu aðstandendur lýsa sér í þungbærri sorg sem hefur áhrif á andlega og líkamlega heilsu þeirra. \nTilgangur: Megintilgangur rannsóknarinnar var að kanna áhrif Alzheimer sjúkdómsins á nánustu aðstandendur látinna einstaklinga ásamt reynslu þeirra af þjónustu sem veitt var í sjúkdómsferlinu. \nAðferðafræði: Valin var eigindleg rannsóknaraðferð. Viðtöl voru tekin við fjórtán einstaklinga þar sem stuðst var við hálfstaðlaðan viðtalsramma. Textinn var flokkaður samkvæmt innihaldi og sameinaður í yfir og undirþemu sem lýstu áhrifum Alzheimer sjúkdómsins á aðstandendur. \nNiðurstöður: Helstu niðurstöður gáfu vísbendingar um að djúp sorg litaði allt ferlið. Hún fylgdi öllum gjörðum og ákvörðunum aðstandenda og eftir andlát tók við nýtt sorgarferli. Erfiðast og sárast var þegar óhjákvæmilegt var að flytja foreldri sitt eða maka inn á öldrunarheimili. Þemagreining sýndi fimm meginþemu: Erfiðleikar og óöryggi; hlutverkaskipting innan fjölskyldunnar; stöðug upplifun missis; áhrif sjúkdóms á líðan aðstandenda; þjónusta í sjúkdómsferli. Undir hverju þema voru nokkur undirþemu. Að lokum voru þemu sameinuð í eitt kjarnaþema sem endurspeglaði þau áhrif sem Alzheimer sjúkdómurinn hafði á nánustu aðstandendur: Erfiðleikar og óöryggi einkenna tímabilið og hlutverk einstaklinga breytist hratt og örugglega, missirinn stigmagnast út sjúkdómsferlið og situr lengi eftir. Áhrif sjúkdómsins eru greinileg og brýnt er að veita góðan stuðning og aðstoð í sjúkdómsferlinu. \nÁlyktun: Heilbrigðisstarfsfólk veitir aðstandendum einstaklinga með Alzheimer stuðning og þjónustu í gegnum tímabil sem einkennast af sorg, óöryggi og hjálparleysi, oft í langan tíma. Mikilvægt er því að stuðla að góðum samskiptum milli starfsfólks öldrunaheimila og aðstandenda, sem einkennast af virðingu og nærgætni. Frekari rannsókna er þörf á Alzheimer sjúkdómnum og þeirri umönnun sem honum fylgir. Auka þarf þekkingu á áhrifum sjúkdómsins og efla aðstoð og fræðslu til aðstandenda. \n \nLykilorð: Aðstandendur, Alzheimer, álag, líðan, erfiðleikar, hjúkrunarheimili, samskipti. \n
Source: Skemman
Author: Tara Björt Guðbjartsdóttir 1987
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Subfield: Psychiatry and Mental health
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7044200375
