Work

Það vill enginn brjóta gegn barni: Áhrif fræðslu og forvarna á mögulega gerendur kynferðisofbeldis gegn börnum

Year: 2013
Type: dissertation
Abstract: Erfitt hefur reynst að fá málefnalega umræðu innan samfélagsins um gerendur kynferðisbrota og kastljósið hefur mikið til beinst að þolendum. Að líta til gerenda kynferðislegs ofbeldis er mikilvægt fyrir mögulega þolendur og samfélagið í heild því ef gerendum fækkar þá fækkar einnig þolendum. Helstu markmið þessarar heimildaritgerðar er að skoða hvernig hægt er að nota fræðslu um kynheilbrigði og klám til að sporna gegn því að einstaklingar þrói með sér barnagirnd eða kynferðislegar langanir til barna. Einnig hvort félagsráðgjafi sé í stakk búinn til að sinna því verkefni að sjá um þá fræðslu til unglinga. Niðurstöður sýna að mikilvægt er að úrræði og fræðsla um kynheilbrigði unglinga standi til boða. Samhliða hraðri þróun klámvæðingarinnar í upplýsingasamfélagi nútímans er þetta mikilvægt svo einstaklingar þrói ekki með sér ranghugmyndir um samlíf og samskipti við annað fólk. Félagsráðgjafar eru vel í stakk búnir til að sinna fræðslu þessa þjóðfélagshóps en eitt af markmiðum félagsráðgjafar er að leita lausna á félagslegum vandamálum. \nLykilorð: Félagsráðgjöf, Barnagirnd, Barnaníð, Klám, Kynheilbrigði
Source: Skemman
Authors: Heiður Ýr Guðjónsdóttir 1989, Stella Björg Kristinsdóttir 1989
Language: Icelandic
Subfield: Gender Studies
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7044217124
Cites: 24
Cited by:
Related to: 10