Work

„Ætlar þú að láta bólusetja þig?“ Ætlun, viðhorf, samsæriskenningar og traust til stjórnvalda í tengslum við COVID-19 bóluefni

Year: 2021
Type: dissertation
Study design: Observational Study
Abstract: COVID-19 heimsfaraldurinn hefur ollið miklum og neikvæðum bæði félagslegum og efnahagslegum afleiðingum. Með góðri þátttöku í bólusetningu við vírusnum er hægt að ná tökum á faraldrinum með hjarðónæmi. Því er mikilvægt að skilja hvaða þættir hafa áhrif á ætlun og viðhorf til bólusetningar. Í þessari rannsókn var lagt mat á eftirfarandi þætti: hvort minna traust til stjórnvalda, upplifun á samfélagslegri ábyrgð gagnvart faraldrinum, jákvæð félagsleg viðmið til bólusetninga, jákvætt viðhorf til bólusetningar og minni trúgirni á samsæriskenningar varðandi COVID-19 og bóluefni tengist ætlun um þátttöku í bólusetningu. Rannsóknin var í formi spurningakönnunar á netinu meðal hentugleikaúrtaks 1.047 Íslendinga og 106 Breta. Markmið rannsóknarinnar var að koma auga á þá þætti sem geta haft áhrif á þátttöku Íslendinga og Breta í bólusetningu gegn COVID-19. Niðurstöður leiddu í ljós að aukin trúgirni á samsæriskenningar tengdar bólusetningum hafði neikvæð tengsl við ætlun um bólusetningu gegn COVID-19 hjá Íslendingum en voru ómarktækar hjá Bretum. Upplifuð samfélagsleg ábyrgð gagnvart faraldrinum og jákvæð félagsleg viðmið til bólusetninga höfðu einnig jákvæð marktæk tengsl við ætlun um bólusetningu hjá Íslendingum og eru því í samræmi við fyrri rannsóknir. Hjá breska úrtakinu voru niðurstöður að hluta jákvætt marktækar fyrir samfélagslega ábyrgð gagnvart faraldrinum en voru ómarktækar fyrir félagsleg viðmið til bólusetninga. Traust til yfirvalda og ætlun um bólusetningu var ómarktækt hjá Íslendingum og Bretum og því ekki hægt að álykta að traust til yfirvalda hafi áhrif á ætlun um bólusetningu. Jákvæðara viðhorf til bóluefna hafði jákvæð tengsl við ætlun um bólusetningu hjá báðum úrtökum. Ljóst er því af niðurstöðum rannsóknarinnar að trúgirni á samsæriskenningar, upplifun á samfélagslegri ábyrgð gagnvart faraldrinum, félagsleg viðmið til bólusetninga og jákvætt viðhorf til bólusetningar hefur allt tengsl við ætlun um bólusetningu hjá íslenska úrtakinu. Ekki er hægt að álykta um alla þessa þætti hjá breska úrtakinu. Íslenska úrtakið var mun stærra en það breska og er það möguleg ástæða fyrir því að ómarktæk tengsl voru á milli nokkra þáttanna hjá breska úrtakinu.
Source: Skemman
Authors: Dagný Kristjánsdóttir, Guðný Eik Arnardóttir
Language: Icelandic
Subfield: Health
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7044217756
Cites: 64
Cited by:
Related to: 10