„Þessi erfiðu þungu einstaklingsmál.“ Persónuleg ráðgjöf náms- og starfsráðgjafa í grunnskólum
Year: 2016
Type: dissertation
Abstract: Markmið þessarar rannsóknar var þrenns konar. Í fyrsta lagi að kanna upplifun náms- og starfsráðgjafa af persónulegri ráðgjöf í grunnskólum. Í öðru lagi að kanna viðhorf þeirra til þess hversu vel undirbúnir þeir eru til að takast á við persónuleg og félagsleg vandamál sem hrjá nemendur. Og í þriðja lagi að fá innsýn inn í helstu vandamál þeirra einstaklinga sem sækjast eftir persónulegri ráðgjöf. Rannsóknin var unnin með eigindlegri rannsóknaraðferð og byggist á viðtölum við sjö náms- og starfsráðgjafa í grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu. \nNiðurstöður sýndu að meirihluti starfstíma náms- og starfsráðgjafa fer í persónulega ráðgjöf og virðist þörfin fyrir slíka ráðgjöf vera mikil. Einnig kom í ljós að helstu vandamál sem hrjá börn og unglinga í dag eru þunglyndi, kvíði og samskiptavandi og að komum vegna kvíðatilvika hefur fjölgað mikið hjá náms- og starfsráðgjöfum. Viðmælendur sögðu að undirbúningur námsins væri ófullnægjandi og þörf hefði verið fyrir ýtarlegri fræðslu varðandi raskanir nemenda til að undirbúa þá fyrir ráðgjöf við nemendur með raskanir.
Source: Skemman
Author: Jóhanna Lúvísa Reynisdóttir 1978
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Education
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7044235830
