Þróun andlegrar vanlíðan meðal ungmenna á Íslandi
Year: 2019
Type: dissertation
Abstract: Rannsóknir hafa sýnt fram á að vanlíðan í samfélaginu sé að aukast. Það er þó greinarmunur á því sem telst vera klínískur vandi og ósértæk vanlíðan. Umfjöllun um geðrænar raskanir eins og kvíða og þunglyndi eru í þá veru að þær séu að aukast umtalsvert, þá sérstaklega hjá ungmennum. Viðhorfsbreyting varðandi geðheilsu hefur verið mikil á síðustu árum og hefur það verið tengt við aukna meðvitund fólks um líðan sinn. Gögn frá skýrslum Rannsóknir og greiningu, Barna- og unglingageðdeild Landsspítalans (BUGL), skýrslu embætti landlæknis og hagstofu voru notuð til þess að kanna svör ungmenna um eigin líðan og heimsóknartölur á opinberar stofnanir. Sjálfsmat ungmenna gefur til kynna að vanlíðan þeirra gæti verið að aukast á síðustu árum. Hinsvegar er þróun á geðheilsu unglinga óljós þegar gögn opinbera stofnanna eru skoðuð, þar sem ungmenni virðast ekki sækja sér aðstoðar á stofnunum vegna geðræns vanda í auknum mæli undanfarin ár.
Source: Skemman
Authors: Njörður Þórhallsson, Guðmundur Jónsson
Language: Icelandic
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7044236208
