When chronic stress becomes burnout: A study of individuals experiences of burnout in everyday life
Year: 2024
Type: dissertation
Abstract: Fjallað verður ítarlega um streitu og kulnun og þætti sem þar tengjast. Það verða gerð skil á því hvaða þættir geta valdið kulnun í daglegu lífi, það er að segja streituvaldandi þættir, sem geta tengst ýmsu í umhverfi einstaklinga, jafnt starfsumhverfi sem og einkalífi. Þeir sem finna fyrir langvarandi streitu og lenda í kulnun missa yfirleitt getuna til að sinna starfi sínu og jafnvel tímabundið getu til að sinna verkefnum í daglegu lífi. Hvað geta einstaklingar gert til að takast á við þessa álagsþætti sem virðast smitast yfir á aðra þætti lífsins? Viðfangsefnið er þarft að skoða en mikil vitundarvakning hefur átt sér stað í íslensku samfélagi. Sífellt fleiri einstaklingar verða streitunni að bráð, lenda á vegg og þurfa að endurskipuleggja sig til þess að takast á við þá streituvalda sem verða á veginum. Kulnun í vinnu hefur verið töluvert rannsökuð hér á landi og gefa þær niðurstöður á að álag í starfi einstaklinga sé mikið, einnig bendir margt til þess að það sé að aukast. Samhliða auknu álagi í starfi eru einstaklingar farnir að upplifa kulnunareinkenni í daglegu lífi og jafnvel er togstreita á milli þessara hlutverka að spila þar inn í. Farið verður yfir helstu félagsfræðilegar kenningar um streitu og kulnun sem voru grundvöllur rannsóknarinnar. Síðan verður kenningum beitt á reynslusögur og skoðað hvernig einstaklingar nýta sér reynslu sína til að byggja sig upp að nýju og hvaða bjargráð þeir nýttu til þess að mæta streitu í daglegu lífi á ný. Reynslusögurnar voru birtar í bókum Sirrýjar Arnardóttur. Nokkur þemu birtust í reynslusögunum og fjallað verður ítarlega um þau í niðurstöðum. Benda niðurstöðurnar til þess að margt sé sameiginlegt hjá þeim einstaklingum sem glímdu við streitu í tengslum við þá þætti sem hafa áhrif á kulnun. Einnig áttu einstaklingarnir margt sameiginlegt áður en þeir urðu örmagna og lentu í kulnun og í bataferlinu þar sem þeir þurftu að setja sjálfa sig í forgang og finna sjálfa sig að nýju með því að sinna grunnþörfunum sem þeir höfðu áður látið mæta afgangi. Niðurstöður rannsóknarinnar staðfesta einnig að tengsl séu milli andlegrar líðanar og líkamlegrar. Ef þú virðir ekki varnarmerki líkamans og þolmörk hans þá mun hann samt sem áður taka af skarið og verða til þess að einn daginn þá kemstu ekki fram úr rúminu, fallið verður meira fyrir vikið, í því meiri afneitun sem þú ert og ferð áfram á hnefanum. Orsök streitu getur verið langvarandi álag og töldu viðmælendur Sirrýjar í fyrstu að vinnustreita væri afleiðing kulnunar en einnig uppsöfnuð áföll sem einstaklingurinn hefur ekki unnið úr. En eftir að hafa unnið mikla sjálfsvinnu kom í ljós að álag og áföll í einkalífi var líklega það sem fyllti mælinn, leiddi til örmögnunar og síðan kulnunar hjá þeim einstaklingum sem tengdu vinnuna sjálfa ekki orsökina. Lykilorð: Streita, streituvaldar, kulnun, áföll, félagslegar þarfir, andlegir og líkamlegir þættir tengdir streitu.
Source: Skemman
Author: Snjólaug Arndís Ómarsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Stress and Burnout Research
Subfield: Social Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7044293634
