Year: 2017
Type: dissertation
Abstract: Verkefnið inniheldur fræðilegan inngang og handbók sem gerð var í samstarfi við Knattspyrnufélagið Þrótt. Handbókin er kennsluskrá í hvernig þjálfa eigi hugræna þætti í yngri flokkum knattspyrnu. Unnið var með hugmyndafræði Sýnum Karakter verkefnisins og áhersluþættir handbókarinnar sömuleiðis valdir eftir því verkefni. Áhersluþættirnir eru sjálfstraust, markmiðasetning, einbeiting, félagsfærni, áhugahvöt og leiðtogahæfni. Í fræðilega hlutanum er rýnt ítarlega í áðurnefnda þætti og lesanda veitt innsýn í hvern þátt fyrir sig og aðferðir hvernig eigi að auka færni á hverju sviði fyrir sig. Í handbókinni eru áhersluatriði fyrir hvern flokk, frá 8.flokki til 3.flokks. Meðfylgjandi eru markmiðasetningablöð sem þjálfarar geta notað til að láta iðkendur sína fylla út og sömuleiðis hugmyndir að hópeflisleikjum sem þjálfarar geta nýtt sér til að efla liðsanda.
Source: Skemman
Author: Sunna Rut Ragnarsdóttir
Institutions: Reykjavík University, University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Developmental and Educational Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7044337726
