„Við gerum kraftaverk á hverjum degi en segjum bara ekki frá því“ : reynsla grunnskólakennara af álagi og streitu í starfi.
Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Á undanförnum árum hefur aukin vitundarvakning orðið meðal \nsérfræðinga sem og almennings um afleiðingar vinnutengdrar \nstreitu en rannsóknir á áhrifum hennar hafa aukið skilning á \nviðfangsefninu til muna. Fjöldi rannsókna, bæði innlendra og \nerlendra, hafa sérstaklega skoðað álag og streitu í starfi \ngrunnskólakennara. Niðurstöður rannsóknanna benda til þess að \ngrunnskólakennarar upplifi mikið álag og því sé nauðsynlegt að \nskoða vel hvað hefur áhrif og hvernig er hægt að bregðast við. \nMarkmið þessarar rannsóknar er að varpa ljósi á reynslu íslenskra \ngrunnskólakennara af álagi og streitu í starfi, hvernig það \nendurspeglast og hver áhrifin og afleiðingarnar eru á líðan og \nstarfsánægju kennara. Áhrif álags og streitu í starfi \ngrunnskólakennara hefur lítið verið rannsakað á Íslandi en \ntilgangur þessarar rannsóknar er að auka skilning og dýpka \nþekkingu á álagstengdum og streituvaldandi þáttum í starfi \ngrunnskólakennara. Á sama tíma verða verndandi og jákvæðir \nþættir starfsins dregnir fram en það er mikilvægur liður í leiðum til \núrbóta. Markmiðið í þessari rannsókn er því jafnframt að koma auga \ná þætti sem draga úr streitu og álagi í starfi grunnskólakennara og \nauka vellíðan og starfsánægju. \nTíu grunnskólakennarar tóku þátt í rannsókninni, níu konur og \neinn karl. Notuð var eigindleg aðferðafræði og hálf-opin viðtöl tekin \nvið þátttakendur. \nRannsóknarniðurstöður benda til þess að grunnskólakennarar \nupplifi mikið álag í starfi vegna margþættra verkefna. Mikið \nvinnuálag og takmarkaður tími til að sinna fyrirliggjandi verkefnum \neinkenndi líðan viðmælenda sem töldu umfang starfs síns þess eðlis \nað því væri sjaldnast lokið. Viðmælendur töldu mikilvægt að \nstjórnendur átti sig á hve íþyngjandi verkefnastaðan getur verið svo \nþeir geti sýnt raunverulegan skilning og stuðning á starfi \ngrunnskólakennara. Félagastuðningur og teymisvinnubrögð höfðu \nmikil og jákvæð áhrif á stafsánægju, vellíðan og velgengni \nviðmælenda. Huga þarf sérstaklega að leiðum til úrbóta sem styðja \nvið grunnskólakennara í starfi og ýta undir vellíðan og starfsánægju \nþeirra.
Source: Skemman
Author: Anna Rósa Friðriksdóttir 1981-
Institution: University of Akureyri
Language: Icelandic
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
SDG: Quality education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7044350213
