Year: 2012
Type: dissertation
Abstract: Viðfangsefni þessarar heimildasamantektar, sem er lokaverkefni til B.Sc. prófs í hjúkrunarfræðum, eru fræðsluþarfir hjartasjúklinga. Um þessar mundir eru hjartasjúkdómar algengasta orsök ótímabærra dauðsfalla í hinum vestræna heimi. Ísland er ekki undanskilið, en árið 2004 var heildarfjöldi nýrra kransæðaáfalla hér á landi 652 tilvik. Hjá Hagstofu Íslands kemur fram að á Íslandi létust 204 karlar og 146 konur úr kransæðasjúkdómum árið 2009. Að greinast með hjartasjúkdóm er mikið áfall og fæstir einstaklingar vita hvernig á að bregðast við og þurfa því fræðslu.Viðfangsefni þessarar samantektar eru fræðsluþarfir kransæðasjúklinga. Finnum við hvað rannsóknir segja um þekkingu kransæðasjúklinga á sjúkdómi sínum, hvað þeir vilja vita um sjúkdóminn, hvað þeir vilja helst fá fræðslu um eftir greiningu og hvort heilbrigðiskerfið mæti þörfum þeirra. Leitum við eftir ritrýndum rannsóknargreinum til að svara rannsóknaspurningunum okkar gefnar út á tímabilinu 2000 til 2012 sem fjalla um fræðsluþarfir, þekkingu og upplifun kransæðasjúklinga af fræðslu veitta af heilbrigðisstofunum. Niðurstöður samantektarinnar benda til þess að mismunandi fræðsluþarfir séu eftir tímabilum, aldri og kyni. Virðast sjúklingar fyrst vilja fá fræðslu um lyfjanotkun, líffæra- og lífeðlisfræði hjartans, áhættuþætti og lífsstílsbreytingar. \nLykilorð. \nKransæðasjúkdómar, hjartasjúkdómar, þekking sjúklinga, meðferðarfylgni, fræðsluþarfir,
Source: Skemman
Authors: Jóhanna Þorvarðardóttir 1978, Ásdís Lilja Ingimarsdóttir 1978
Language: Icelandic
Subfield: Cardiology and Cardiovascular Medicine
Field: Medicine
Domain: Health Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7044381277
