„Þú þarft alltaf að vera að vinna í lausnum“: Breytingar á rekstrarumhverfi viðburðafyrirtækja á Íslandi í kjölfar heimsfaraldurs
Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Megintilgangur rannsóknarinnar var að fá innsýn í viðbrögð stjórnenda og það breytingarferli sem viðburðafyrirtæki gengu í gegnum í kórónuveirufaraldrinum (COVID 19) á tímabilinu mars 2020 til mars 2021. Fyrirtæki í ferðaþjónustu eru sérstaklega viðkvæm fyrir áföllum líkt og smitsjúkdómafaröldrum en einnig hefur reynslan sýnt að \nferðaþjónustufyrirtæki hafa verið fljót að ná sér á strik eftir áföll. Í upphafi faraldursins var ljóst að viðburðafyrirtæki voru í mjög viðkvæmri stöðu og féll allt viðburðahald niður \nvegna samkomutakmarkana innanlands en einnig vegna takmarkana á komur \nferðamanna til landsins. Sjö viðtöl voru tekin við stjórnendur viðburðafyrirtækja á Íslandi og þeir spurðir út í viðbrögð sín við algjörlega breyttum rekstrargrundvelli og eru meginniðurstöður eftirfarandi: Stjórnendur viðburðafyrirtækja eru mjög lausnamiðaðir \nog fóru strax að leita leiða til að viðhalda einhverskonar starfsemi og vinna gegn miklu tekjutapi. Var fljótt farin sú leið að nýta tæknina og kapp var lagt við að halda faglega viðburði með aðstoð streymisþjónustu. Fyrirtækin hafa þurft að segja upp starfsfólki og orðið að reiða sig á styrki frá stjórnvöldum á þessum óvissutímum en höfðu að sama skapi \nhagað rekstri sínum þannig að fjárhagsleg staða þeirra var góð í upphafi faraldursins. Stjórnendur fyrirtækjanna eru bjartsýnir á framtíð viðburðahalds þrátt fyrir mikla óvissu sem enn ríkir og líta á tæknina sem viðbót við viðburðahald til framtíðar. Þegar þetta er \nskrifað í lok apríl 2021 hafa reglugerðir á landamærunum og innanlands verið að breytast í sífellu í rúmt ár og oft með mjög skömmum fyrirvara en vonir eru bundnar við að starfsemin geti farið í fyrra horf sem allra fyrst.
Source: Skemman
Author: Berglind Helgadóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: COVID-19 Pandemic Impacts
Subfield: Economics and Econometrics
Domain: Social Sciences
Keywords: tourism enterprises, COVID-19 pandemic, organizational change, management communication, employee motivation, remote work, videoconferencing, digital transformation, crisis management, hospitality industry, employee well-being, organizational structure, organizational hierarchy, organizational communication, organizational change processes
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7044415499
