Work

Áhrif sætuefna á þyngdarstjórnun

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Bakgrunnur: Sætuefni er alltaf að verða sí vinsælli í neysluvenjum um allan heim á sama tíma og þyngdaraukning er að verða eitt mesta heilsufarsvandamál í nútíma samfélagi. Vangaveltur hafa verið lengi til staðar um ágæti sætuefnis og hvort það sé yfir höfuð betri kostur en venjulegur sykur. Mikil vitundarvakning hefur verið um heilsuna þar sem sætuefni hafa verið innleidd sem góð viðbót í þyngdarstjórnun. Tilgangur og markmið: Markmiðið með þessari fræðilegu samantekt var að skoða hvort tengsl séu á milli neyslu sætuefna og þyngdarstjórnunar, hvort svör séu um það hvort og þá hvernig sætuefni hafa áhrif á þyngdarstjórnun. Safnað var saman ýmsum upplýsingum sem voru til og skoðað hvað þarf að rannsaka nánar í þessum efnum. \nAðferð: Verkefnið var unnið sem fræðileg samantekt þar sem heimildum var aflað úr tveimur rafrænum gagnagrunnum, PubMed og Web of Science, ásamt því að einhverjar greinar voru teknar inn með óhefðbundinni gagnasöfnun. Við leitina var notast við inntöku- og útilokunarskilyrði til þess að afmarka val á rannsóknum sem uppfylltu inntökuskilyrðin og voru frá árunum 2013-2023. \nNiðurstöður: Alls stóðust fimmtán rannsóknir inntökuskilyrðin. Rannsóknirnar voru flestar með ómarktækar niðurstöður, einhverjar sýndu fram á tengingu milli neyslu sætuefna og þyngdartaps á meðan aðrar sýndu fram á enga tengingu á milli neyslu sætuefna ogþyngdartaps. Tvær rannsóknir hjá eldri einstaklingum sýndu fram á þyngdaraukningu og kviðfitu eftir langtíma neyslu sætuefna. Ein rannsókn sýndi fram á tengingu milli neyslu sakkarínis og þyngdaraukningu en ekki fannst tenging við önnur sætuefni. \nÁlyktun: Hægt er að nýta ýmiskonar úrræði svo sem fræðslu og ráðgjöf við að aðstoða fólk í að breyta um lífsstíl, jafnvel þó það sé heilbrigt eða með heilsufarskvilla líkt og ofþyngd eða offitu sem dæmi. Þörf er á að framkvæma langtíma rannsóknir sem geta sýnt fram á langvarandi árangur, eða ekki. \nLykilorð: Sætuefni, sykur, þyngdarstjórnun, ofþyngd, offita
Source: Skemman
Author: Bryndís Gísladóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7045014941
Cites: 47
Cited by:
Related to: 10