Áhrif Covid-19 á íslenska ferðaþjónustu. Viðbrögð og breytingar stjórnenda við Covid-19 faraldrinum.
Year: 2021
Type: dissertation
Abstract: Markmið ritgerðarinnar er að fá innsýn í það hvernig viðbrögð og breytingar stjórnenda voru við Covid-19 faraldrinum. Rannsóknir hafa sýnt að stjórnendur í ferðaþjónustufyrirtækjum hafa áður orðið fyrir áföllum. Faraldrar, kreppur og aðrar krísur hafa geisað um alla heimsbyggðina og gert mörgum óleik. Margar skipulagsheildir á Íslandi hafa lent í miklum ógöngum síðustu áratugi en komið sterkari tilbaka. Stjórnendur hafa því þurft að bregðast við ýmsum áföllum og brugðist því t.d. með skipulagsbreytingum sem eru óhjákvæmilegar. Það þótti því ástæða til að skoða nánar viðbrögð stjórnenda við Covid-19 faraldrinum og athuga hvernig breytingaferlinu var háttað með tilliti til aðgerða stjórnvalda. \nAðferðarfræðin sem notuð var til að svara þessari spurningu var þríþætt: greining á fyrri rannsóknum; eigindleg rannsókn þar sem fimm stjórnendur ferðaþjónustufyrirtæka voru spurð út í viðbrögð og breytingar við Covid-19 faraldrinum og framtíðarsýn þeirra í ferðaþjónustunni; og að lokum var gerð greining á niðurstöðum rannsóknarinnar ásamt samanburði við fyrri skrif fræðimanna. \nNiðurstaðan var sú að viðbrögð stjórnenda hjá þeim fyrirtækjum sem tóku þátt í rannsókninni voru samkvæmt þeim kenningum sem farið var af stað með. Það mátti sjá hversu tilbúnir viðmælendur voru að leiða allt sitt fólk í átt að settum markmiðum. Þrátt fyrir óvæntan faraldur sem breiddist út á ógnarhraða, þá voru öll vinnubrögð er varðar upplýsingaflæði, viðbragðsteymi, markmiðasetningu, eftirfylgni og í raun allar þær breytingar sem hafa átt sér stað í þjóðfélaginu mjög jákvæðar hjá þeim öllum. Viðmælendur nýttu sér viðeigandi úrræði stjórnvalda til þess að reyna að ná settum markmiðum í breytingaferlinu, með það að leiðarljósi að halda fyrirtæki sínu á lífi þar til hægist á faraldrinum og bólusetning hefst. Það er alveg ljóst að þegar slíkt áfall á sér stað þá er óhjákvæmilegt annað en að bregðast skjótt við, einkum þegar aðstæður stjórnast af faraldri og aðgerðum og úrræðum stjórnvalda.
Source: Skemman
Author: Davíð Örn Hlöðversson
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7045047814
