Work

Áhrif Bowen tækni á börn með ofvirkni og/eða athyglisbrest

Year: 2007
Type: dissertation
Abstract: Útdráttur \nTilgangur rannsóknarinnar var að gera frumkönnun á áhrifum einnar óhefðbundinnar \nmeðferðar, Bowen tækni, á börn með ofvirkni og/eða athyglisbrest (ADHD). \nADHD er krónísk og almenn taugageðfræðileg röskun sem venjulega kemur fram snemma á \nbarnsaldri. Megineinkennin eru meðal annars áberandi eftirtektarleysi, áhugaleysi og \neinbeitingarskortur, að barnið á erfitt með að sitja lengi kyrrt og er oft á iði. Helstu \nmeðferðarúrræði við ADHD eru lyfjameðferðir og atferlismótandi meðferðir. Lítið er vitað \num áhrifa annarra meðferða en lyfjameðferða. Rannsóknir hafa þó sýnt að foreldrar nota í \nauknum mæli óhefðbundnar meðferðir fyrir börn sín. \nRannsóknaraðferðin var megindleg og lýsandi. Þýði rannsóknarinnar voru þau börn sem \nkomu til fjölskyldudeildar Akureyrarbæjar frá því í byrjun febrúar fram í byrjun maí 2007. \nÚrtakið innihélt sex börn á aldrinum fjögurra til ellefu ára sem uppfylltu greiningarskilyrði \nfyrir ofvirkni og/eða athyglisbrest. Gögnin voru fengin úr tveimur spurningalistum, annars \nvegar margprófuðum matslista fjölskyldudeildar og hins vegar spurningalista rannsakanda \nsem verið var að forprófa og úr sjúkraskrám þátttakenda. Þrír voru fyrir meðferð greindir \nofvirkir en fimm með athyglisbrest. Eftir meðferðina var aðeins einn sem enn uppfyllti \ngreiningarskilyrði fyrir ofvirkni og fjórir sem uppfylltu greiningarskilyrði fyrir \nathyglisbrest. \nVið meðferðina batnaði svefn og hvíld þátttakenda verulega og leiddi það til betri hegðunar \nþeirra og einbeitingar. \nHjúkrunarfræðingar þurfa að vera opnir fyrir og hafa góða þekkingu á óhefðbundnum \naðferðum og geta komið til móts við þarfir skjólstæðinga sinna og sýnt skilning á þeim \nhugmyndum sem þeir hafa til að bæta líðan sína. \nLykilorð: ofvirkni, athyglisbrestur, Bowen tækni, svefnvandamál, óhefðbundnar meðferðir.
Source: Skemman
Author: Jóhanna Harðardóttir
Language: Icelandic
Field: Medicine
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7045057239
Cites: 56
Cited by:
Related to: 10