Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Viðfangsefni ritgerðarinnar er að kanna hvort að flutningur á milli landa hafi neikvæð áhrif á tilfinningalíf og félagslega stöðu barna. Áhugi höfundar kviknaði þegar höfundur kynntist barni sem var nýflutt til landsins og var vanlíðan barnsins afgerandi. Mikil aukning hefur verið á því að fólk sé að flytja með börn sín á milli landa og er því nauðsynlegt að vekja athygli á þeim afleiðingum sem flutningarnir geta haft á börn til þess að hægt sé að mæta þeim og þeirra þörfum. Fjallað verður um börn sem eru innflytjendur hér á landi og einnig almennt þegar börn flytja frá heimalandi sínu og setjast að víðs vegar um heiminn. Það var áberandi við gagnaöflun þessarar ritgerðar hversu fáar rannsóknir hafa verið gerðar á börnum hérlendis en meira var þó um erlendar rannsóknir á viðfangsefninu, en margt af því var hægt að endurspegla í íslensku samfélagi. Helstu niðurstöður ritgerðarinnar voru að flutningurinn hefur áhrif en það er margt sem spilar inn í hversu mikil áhrifin eru.
Source: Skemman
Author: Aldís Ísabella Fannarsdóttir
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Topic: Migration, Health and Trauma
Subfield: Clinical Psychology
Field: Psychology
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7045146195
