Work

Áhrif hvatningarkerfis með Beanfee hugbúnaðinum á líðan, skólasókn og verkefnaskil nemenda með skólaforðun

Year: 2023
Type: dissertation
Abstract: Í þessari rannsókn voru metin áhrif Beanfee hugbúnaðarins á líðan, skólasókn og verkefnaskil nemenda með skólaforðun. Þátttakendur voru þrír drengir og ein stúlka, 13-14 ára í grunnskóla á höfuðborgarsvæðinu, sem tilnefndir voru til þátttöku vegna tíðrar fjarveru úr skóla. Beanfee hugbúnaðurinn var notaður til að útbúa einstaklingsmiðað hvatningarkerfi fyrir hvern þátttakanda, í samstarfi við foreldra þeirra og umsjónarkennara. Markmið varðandi mætingu og verkefnaskil voru valin í samráði við umsjónarkennara og umbun og afreksmerki voru valin í samráði við foreldra og nemendur. Þátttakendur fengu tiltekinn fjölda táknstyrkja í formi „bauna“ fyrir að mæta í hverja kennslustund og tvöfaldan fjölda fyrir fyrstu og síðustu kennslustundirnar. Einnig fengu þeir táknstyrkja fyrir að skila vikulegum verkefnum í stærðfræði. Þátttakendur og umsjónarkennari þeirra skráðu mætingu og skil á verkefnum í Beanfee. Þátttakendur skráðu jafnframt líðan í skólanum á kvarðanum 1-10 innan Beanfee. Foreldrar gátu fylgst með mætingu og verkefnaskilum þátttakenda í gegnum Beanfee í snjallsímum sínum og höfðu það hlutverk að veita þá umbun sem barn þeirra hafði valið sér í „baunabúðinni“ fyrir safnaða táknstyrkja. Áður en íhlutun hófst var tekið virknimatsviðtal við foreldra hvers þátttakanda til þess að hægt væri að kortleggja vandann. Foreldrum var veitt ráðgjöf varðandi það hvernig best væri að hagræða umhverfi barnsins heima til þess að auka líkurnar á því að barnið mæti í skólann. Foreldrum var ráðlagt að draga úr þeirri styrkingu sem í boði var fyrir barnið heima þegar það mætti ekki í skólann, svo sem að takmarka aðgengi að interneti, snjallsíma, sjónvarpi og leikjatölvum á skólatíma. Íhlutun var framkvæmd í 89% samræmi við leiðbeiningar að meðaltali og varði í 4-5 vikur fyrir hvern þátttakanda. Skólasókn var metin með skráningum kennara á mætingu þátttakenda í kennslustundir í Mentor upplýsingakerfið. Áreiðanleiki Mentorskráninga kennara á mætingu þátttakenda var metinn alls 19 sinnum og reyndist 100% í samræmi við beinar athuganir rannsakanda. Margfalt grunnskeiðssnið yfir þátttakendur sýndi að með notkun Beanfee jókst skólasókn tveggja þátttakenda (hlutfall fjarveru úr skóla lækkaði úr 29,1% í 3,5%, eða um 88% að meðaltali). Hjá hinum tveimur þátttakendum jókst skólasókn til að byrja með en fór síðan versnandi (fjarvera úr skóla jókst að meðaltali úr 18,9% í 27,8%). Hlutfall vikulegra verkefnaskila jókst verulega hjá tveimur þátttakendunum (að meðaltali úr 29,8% í 88,6% eða um 197,3%), lítillega hjá þriðja þátttakandanum (að meðaltali úr 22% í 25%) en lækkaði hjá fjórða þátttakandanum (að meðaltali úr 26,3% í 0%). Líðan þriggja þátttakenda batnaði lítillega, að meðaltali úr 6,6 í 7,3 á skalanum 1-10, eftir að notkun Beanfee hófst. Líðan fjórða þátttakandans batnaði lítillega eftir að íhlutun var innleidd en fór síðan versnandi, að meðaltali úr 5,6 í 4,8. Svör þátttakenda, kennara og foreldra við spurningalista um félagslegt réttmæti, sýndu að flestum þótti Beanfee auðvelt í notkun og virka betur en önnur úrræði sem reynd höfðu verið. Niðurstöður benda til þess að hvatningarkerfi, framkvæmt af kennara, í samvinnu við nemendur og foreldra þeirra með Beanfee hugbúnaðinum geti í einhverjum tilfellum aukið skólasókn, ýtt undir verkefnaskil og bætt skólatengda líðan nemenda með skólaforðun.
Source: Skemman
Author: Jóhanna Sif Jóhannsdóttir
Language: Icelandic
Subfield: Education
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7045180396
Cites: 43
Cited by:
Related to: 10