Year: 2020
Type: dissertation
Abstract: Ýmsir þættir þéttbýlis eru taldir auka líkur á streitu og getur streita haft víðtæk áhrif á fólk. Kenningar á sviði umhverfissálfræði geta veitt innsýn í þá umhverfisþætti sem hafa áhrif á mat einstaklinga á umhverfinu. Í þessari rannsókn voru skoðuð samvirk áhrif streitu og umhverfis á upplifun einstaklinga á endurheimt, fjarveru, hrifningu, dálæti, flækjustigi og umlykingu. Í rannsókninni var nýttur sýndarveruleiki í birtingu tveggja mismunandi þéttbýlisumhverfa. Munurinn milli umhverfanna fólst í mun á endurheimtandi eiginleikum mikil endurheimt (ME) og lítil endurheimt (LE), s.s. hvað varðar magn gróðurs, stig umlykingar, og flækjustigs. Tilgátur rannsóknarinnar voru tvær; annars vegar að upplifun á ofangreindum þáttum væri meiri í hverfi ME heldur en í LE, og að samvirk áhrif streitu og umhverfis hefði áhrif á upplifun þátttakenda á umhverfunum. Fyrri tilgáta stóðst en niðurstöður sýndu engin samvirk áhrif streitu og umhverfis á upplifun einstaklinga á umhvefinu.
Source: Skemman
Author: Ólafur Sverrir Stephensen
Institution: University of Iceland
Language: Icelandic
Subfield: Sociology and Political Science
Field: Social Sciences
Domain: Social Sciences
Open Access status: green
OpenAlex ID: W7045190596
